Þungir dómar?

Fyrirsögnin á þessari frétt er „Þungir dómar í Keilufellsmáli“. Ég get ómögulega séð hvernig tvö og hálft og þriggja og hálfs árs fangelsi geti talist þungur dómur.

Mér finnst dómarnir  síst of þungir og hæfa afbrotinu sem var gróf líkamsárás þar sem m.a. var beitt,  járnstöng, járnröri, hamri, sleggju, gaddakylfu, golfkylfu, hafnaboltakylfu, hníf og öxi. Fórnarlömbin sjö hlutu sumir hverjir alvarlega áverka.

Það alvarlega er að aðeins fjórir af 10 eða 12 árásarmönnum hlutu dóma. En blaðamaðurinn sem fannst  þetta þungur dómur getur huggað sig við að Hæstiréttur mun, ef að líkum lætur, milda dómana til muna.

 
mbl.is Þungir dómar í Keilufellsmáli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Guðnason

Þetta finnst ekki þungur dómur,og vona nú að Hæstiréttur sýni þessum mönnum að við líðum ekki svona framkomu hér á Íslandi,eins á að sýna þeim pólverjum sem hér búa og eru heiðalegir,að þeim sé í lagi að kæra þessa óþvera sem hóta þeim og limlesta,þessir mafíubóar sem komast upp með þetta í póllandi vegna þess að löreglan þar er spilt,en á Íslandi eru bestu löreglumenn og heiðalegustu í heimi,hér er óhætt að kæra,því íslenska löreglan er ekkert hrædd við þessa mafíu og hika ekki við að taka á þeim,helst á að senda þá út um leið og þeir losna,ég vinn með nokkrum pólverjum,og er það fyrirmyndar fólk heiðalegt og duglegt,en því miður er mafían mjög sterk hjá þeim og margir þora ekki að kæra þá,að fyrri reynslu í heimalandi þeirra,en þessi dómur mun sýna þeim að það eru heiðarlegir löreglumenn hér á Íslandi,frábært hjá þeim.Þarna unnu þeir vel fyrir þjóðina,og vonandi tekur hæstarréttur fasta á þessu og hækkar þetta í fjögur ár + hækka greiðslur til þolanda. Áfram Ísland,hér er réttlæti .

Jóhannes Guðnason, 15.12.2008 kl. 14:45

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Því miður óttast ég að dómarnir verði mildaðir í Hæstarétti, því samkoman sú hefur farm að þessu metið meira fé og fjármuni en líf og limi. Svo sitja þeir inni aðeins rúmlega helming tímans áður en þeir verða sendir heim á kostnað ríkisins.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.12.2008 kl. 15:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.