Rangt skotmark

litakortÞað var miður að skemmdir skyldu unnar á húsinu, óþarfi að gera það til að koma skoðunum sínum á framfæri.

Ef nauðsynlegt var að skvetta málningu þá hefði átt að klína henni á Geir eða Sollu, engin verðmæti þar.

Sé málningu skvett á annað borð er nauðsynlegt að vanda val hennar vel, hún þarf að vera endingargóð, þolin, slitsterk og umfram allt umhverfisvæn og Íslensk.

 
mbl.is Málningu slett á ráðuneyti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Það eru aldeilis skemmdirnar, málning sem er hægt að þrífa af með smá terpentínu?

Vésteinn Valgarðsson, 9.1.2009 kl. 17:47

2 identicon

Ég held að fólk ætti að vera svolítið meðvitað um hvað er að gerast á Gazasvæðinu. Líttu á myndirnar á síðunni minni. Ekki falleg sjón.

Rétt mynd af því sem er að gerast.

Steinar Arason Ólafsson (IP-tala skráð) 9.1.2009 kl. 17:55

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Vésteinn, málning sem háð er terpentínu eða skildum efnum sem leysiefni verður aldrei þrifin fullkomlega af. Það verður alltaf að mála yfir eða skipta um klæðningu. Vatnsþynnanlega málningu verður að þrífa strax, nái hún að byrja að þorna vandast málið og í svona tilfellum hefur hún einmitt þann galla að hafa stuttan þurrktíma.

Steinar, ég vona að þú sért ekki að misskilja mig. Ég fordæmi það sem er að gerast á Gaza og þá sem mæla því bót.

Ég er hinsvegar ekki hlynntur því að menn mótmæli með skemmdaverkum.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.1.2009 kl. 18:19

4 identicon

Vésteinn virðist ekki gera sér grein fyrir því að vinnan við að þrífa málninguna af kostar líka pening, auk þess þar sem þú þarft að mála aftur yfir. Persónulega finnst mér að einstaklingar eins og Vésteinn ættu bara að borga þetta með skattpeningi sínum (ef hann borgar skatta yfir höfuð) en ekki ég.

Þó styð ég Palestínubúa fullkomlega, þó fyrirlít ég Hamas samtökin. Fólk virðist stundum gleyma því hve miklir óþokkar þeir eru líka :/

Andri (IP-tala skráð) 9.1.2009 kl. 18:27

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Andri, ég er hreint ekkert hrifinn af Hamas heldur og styð ekki þeirra aðgerðir. En það er engan vegin hægt að leggja þessar þaulskipulögðu árásir tæknivæddasta og best búna her heims að jöfnu við heimatilbúnar "eldflaugar" Hamas sem er skotið tilviljunarkennt yfir landamærin til  Ísrael og hending ein ræður að þær hitti eitthvað.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.1.2009 kl. 21:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband