Fingralöngum vegnar betur

jon_asgeir_jpg_550x400_q95Þá liggur það fyrir, vísindalega sannað, að  „fingralangir“ eiga auðveldara með að afla sér lífsviðurværis en öðrum.

Væri ekki rétt að bregða tommustokknum á krumlunar á útrásarvíkingunum?

.

.

(P.s. Heiða takk fyrir myndina.)

 
mbl.is Stærðin skiptir máli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Heyrðu... ég er með mynd sem passar vel við þetta blogg þitt :)

Heiða B. Heiðars, 13.1.2009 kl. 16:51

2 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Hahaha....snilld :)

Heiða B. Heiðars, 13.1.2009 kl. 18:00

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir myndina Heiða, þetta kemur ótrúlega vel út.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 13.1.2009 kl. 18:09

4 Smámynd: Jens Guð

  Fréttin er bæði gömul og villandi.  Hið rétta er að þarna er um að ræða lengd baugfingurs til samanburðar við vísifingur.  Það er samræmi á milli velgengni karla og þess hvort eða hvað mikið lengri baugfingurinn er. 

  Þetta hefur verið vitað í fjöldamörg ár.  Ótal rannsóknir hafa staðfest þetta.  Flestir karlmenn eru með baugfingur styttri en vísifingur.  Ég hef haft sérlega mikinn áhuga á þessu vegna þess að baugfingur mínir eru lengstu puttarnir á mínum krumlum og 2 cm lengri en vísifingur.

  Rétt er að taka fram að fingralengd kvenna segir ekkert til um velgengni þeirra á neinu sviði,  svo vitað sé.  Þetta á einungis við um karla.

Jens Guð, 13.1.2009 kl. 19:15

5 identicon

Hann seilist djúpt, setti hann ekki puttana í konuna hans Sullenbergers?

Vignir (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 19:44

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Setti hann puttana djúpt í,.... hvað, Vignir?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 13.1.2009 kl. 20:12

7 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Ég er bara nokkuð sáttur við fingralengdina á mér þessa stundina, en auðvitað tékkaði ég á lengd baugsfingur miðað við vísifingur. Ja, má ég nú frekar biðja hefðbundna útgáfu "karlafingra", þar sem baugfingur er styttri en vísifingur, heldur en fingralengd kaupahéðna í Lundúnum! Eru þessar tölur nýjar eða gamlar? Gaman væri að sjá, hvort fjárfestingarnar voru allar jafn skynsamar þegar til lengri tíma er litið, því þar spila skjótar ákvarðanir og skammtíma einbeiting kannski ekki stærstu rulluna.

Ég held að okkur megi nú öllum vera ljóst, að þessi viðbrögð hjá "útrásarkrimmunum" okkar - þ.e.a.s. einbeiting og skjót viðbrögð - eru stórlega ofmetin í viðskiptum.

Það ætti hins vegar að skoða fingralengd ríkisstjórnarinnar og er ég viss um að þeir "karlmenn", sem þar eru innanborðs eru með agnarsmáa baugfingur, því þar fer ekki mikið fyrir einbeitingu og skjótum ákvörðunum.

Þeir eiginleikar, sem menn þurfa hafa að bera í alvöru viðskiptum, sem hafa langtímamarkmið að markmiði en ekki skammtímagróða, eru að mínu mati ráðvendni, gáfur, rósemi, þolinmæði, ráðdeildarsemi, góð menntun og hugsanlega einhver agnarögn af kunnáttu í reikningi, bókhaldi og hagfræði.

Okkur gamaldags íhaldsmönnum er þar frekar hugsað til heldri bankamanna á borð við Ragnar Önundarson og Val Valsson. 

Guðbjörn Guðbjörnsson, 14.1.2009 kl. 07:44

8 Smámynd: Maelstrom

Reyndar eru hefðbundnir karlaputtar með baugfingur lengri en vísifingur.  Konurnar eru með lengri vísifingur.  Hægt að lesa um meira á Wikipedia:

http://en.wikipedia.org/wiki/Digit_ratio

Maelstrom, 15.1.2009 kl. 12:21

9 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þakka álitsgjafir. Það vekur athygli mína að menn horfa eingöngu á vísindahlið fingralengdar en horfa framhjá efni greinarinnar sem byggir á óeiginlegri merkingu þess að vera "fingralangur". Er þekking á því hugtaki horfin?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.1.2009 kl. 12:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.