„Göngum hreint til verks!“

Geir goðiÁróðursauglýsing frá Sjálfstæðis- flokknum, sem núna er keyrð bæði í útvarpi og sjónvarpi, endar á  slagorðinu „göngum hreint til verks“.

Í ljósi atburða síðustu daga verður þessi staðhæfing býsna brosleg.

Rétt eins og „stóri sannleikurinn“ á meðfylgjandi mynd.

Ætli Sjálfstæðisflokkurinn sé að hvetja kjósendur að ganga hreint til verks í kjörklefanum í komandi kosningum?

 


mbl.is Fylgið flæðir milli flokka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sjálfstæðisflokkurinn hefur gengið í gegnum mikla naflaskoðun og endurnýjun. Miðað við það sem þessir flokkar hafa uppá að bjóða líst mér best á Sjálfstæðisflokkinn. Hann fær mitt atkvæði og ég treysti því að hann gangi hreint til verks.

Magnús (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 20:05

2 identicon

Nafni, það er eins gott að það eru ekki fleiri en svona 20% kjósenda sem eru jafn veruleikafirrtir og þú. Hversu oft er hægt að ljúga að kjósendum? Hversu mikil áhrif hefur hræðslu áróður spillingarFLokksins? Nú þurfa Íslendingar að losa okkur við elítuna og halda ótrauð áfram.

Magnús (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 21:01

3 identicon

Spurning hvoru megin veruleikafirringin liggur nafni. Þú ert greinilega að breiða út hræðsluáróður Samspillingarinnar. Og jú það er rétt hjá þér, nú þurfa kjósendur að svæla vinstri elítuna út úr stjórnarráðinu. 

Magnús (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 21:20

4 Smámynd: Hlédís

Gengur hreint til þess verks  .. og klárar þetta!   Nóg rakbeint og hreint hefur Flokkurinn leitt þjóðina í fjárhagslegar ógöngur síðastliðin 4 og 1/2 kjörtímabil! 

Hlédís, 16.4.2009 kl. 21:25

5 identicon

Slátrun á sér stad á flokki einum spilltum.

Láttu mig hafa brúnadar kartöflur, elsku hjartans kallin minn (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 21:54

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Magnús 1, var svikið loforð Þorgerðar Katrínar um að birta allt um torkennilegt fjármála brask þeirra hjóna varðandi Kaupþing hluti af svokallaðri  naflaskoðun og endurnýjun Sjálfstæðisflokksins, þegar hún var endurkjörin varaformaður flokksins?

Ég skil ekki í hverju meintur hræðsluáróður Samfylkingarinnar á að vera fólgin. Það þarf ekki að minna kjósendur á hverjir hafa verið við völd óslitið síðustu átján ár. Sporin hræða og brennt barn forðast eldinn. 

Magnús 2 og Hlédís takk fyrir innlitið og undirtektir.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 16.4.2009 kl. 22:18

7 identicon

Göngum hreint til verks.... hmmm.

Malbikum landið, virkjum allt sem hægt er og gefum álfyrirtækjunum orkuna á silfurfati og vonum að þeir gauki að okkur brauðmolum.

Nei takk.

Hinrik (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 23:58

8 identicon

Hinrik, þú gleymdir:  og gefa kvótabröskurunum og vinum auðlindir hafsins!

Helv... aumingjar, landráðamenn!!!

Birna (IP-tala skráð) 17.4.2009 kl. 01:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.