Maí 2025
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Nýjustu færslurnar
Eldri færslur
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Hvar liggur hollustan?
29.4.2009 | 02:13
Klaufalegt vægast sagt hvernig þetta mál er vaxið og öll umgjörð þess. Fyrir hvað hefur sendiherrum Bandaríkjanna verið veitt Fálkaorðan og hver var ástæða þess að bæta átti þessari sendit.. Carol van Voorst, í þann hóp?
Er Fálkaorðan ekki veitt fyrir framúrskarandi þjónustu við Ísland eða eitthvert sérstakt framtak í þágu lands og lýðs sem ástæða þykir að verðlauna? Uppfylla skeytasendlar Bandaríkjastjórnar þau skilyrði?
Þessi skeytasendill, sem er launaður starfsmaður Bandaríkjastjórnar, hefur fyrst og síðast það hlutverk að gæta hagsmuna Bandaríkjanna, engra annarra. Sendiherrar Bandaríkjanna mega ekki veita orðum viðtöku nema með sérstöku leyfi frá Votatúni. Slíkt þykir að öllu jöfnu ekki ýkja þjóðhollt.
Það er löngu ljóst að töluverður hópur manna á Íslandi hefur ætíð talið það sjálfsagðan og eðlilegan hlut að Íslendingar setji Bandaríska hagsmuni ofar öllu öðru. Sú þrælslund virðist hafa hreiðrað býsna vel um sig í stjórnkerfinu undanfarin 18 ár.
Í því ljósi verður raunverulegur tilgangur þess skýrari að orðum sé nánast þröngvað upp á skeytasendlana að skilnaði.
![]() |
Svikin um Fálkaorðuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Tenglar
Mínir tenglar
- MYNDAALBÚM Ljósmyndir síðuhafa
- Skagaströnd Heimasíða Sveitarfélagsins Skagaströnd
- Húnahornið Fréttavefur Húnvetninga
- LJÓSMYNDASAFN SKAGASTRANDAR
Heimsóknir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.5.): 7
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 23
- Frá upphafi: 1028080
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
axelma
-
beggo3
-
emilssonw
-
snjolfur
-
saemi7
-
asthildurcesil
-
thorsteinnhgunnarsson
-
jensgud
-
reykur
-
joningic
-
nafar
-
bofs
-
olijon
-
gthg
-
olafurjonsson
-
kristjangudmundsson
-
mosi
-
josefsmari
-
hlf
-
johanneliasson
-
svarthamar
-
heidarbaer
-
thruman
-
ludvikjuliusson
-
stefanjul
-
axelaxelsson
-
svanurg
-
viggojorgens
-
rlingr
-
boggi
-
fosterinn
-
arikuld
-
trj
-
kliddi
-
kristbjorn20
-
ksh
-
helgigunnars
-
maggib
-
prakkarinn
-
hecademus
-
skari60
-
gudjul
-
jonsnae
-
krissiblo
-
aztec
-
kristjan9
-
gisgis
-
komediuleikhusid
-
flinston
-
muggi69
-
gorgeir
-
keh
-
arnorbld
-
gullilitli
-
skarfur
-
sveinne
-
zerogirl
-
finni
-
kaffi
-
taraji
-
keli
-
gretarmar
-
zeriaph
-
fun
-
seinars
-
hordurj
-
esgesg
-
jonhalldor
-
icekeiko
-
kjarri
-
siggisig
-
bjornbondi99
-
gullaeinars
-
gustichef
-
gusg
-
raftanna
-
himmalingur
-
baldher
-
minos
-
huldumenn
-
valli57
Innskráning
Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.
Athugasemdir
Enn einu sinni klikkar Ólafur Ragnar Grímsson og hans fólk, er ekki kominn timi til að hann segi af sér. Þetta er algjör skömm.
Ólafur hefur farið offari í að veita þessar fálkaorður, persónulega finnst mér rithöfundar, málarar og embættismenn eiga ekki að fá orður. Annað gildir um fólk sem í sjálfboðavinnu sínar framúrskarandi þjónustu við t.d. krabbameinssjúklinga og aðra sjúklinga.
Ólafur verður að fara að hægja á sér er ekki hægt að ávíta manninn?
ólafur P. (IP-tala skráð) 29.4.2009 kl. 10:09
Þessa blessuðu fálkaorðu hafa menn nú fengið bara fyrir að sinna vinnunni sinni. Það ætti bara leggja þetta orðudæmi niður áður en þetta fer að fást í kókópöffspökkum.
Magnús P. Guðmundsson (IP-tala skráð) 29.4.2009 kl. 10:20
Fálkaorðan hefur misst gildi sitt með ofnotkun og veitingu hennar út og suður til embættismanna sem ekki hafa afrekað annað en að vera áskrifendur að laununum sínum.
Forsetinn hefur almennt ekkert með val á orðuþegum að gera. Það er alfarið í höndum orðuveitingarnefndar sem starfar í umboði forsætisráðuneytisins. Í hlut forsetans kemur síðan að hengja djásnið á bringu viðtakandans fyrir framan myndarvélar.
Orðunefnd er svona skipuð:
Ólafur G. Einarsson, fyrrv. ráðherra og fyrrv. forseti Alþingis, formaður orðunefndar
Jón Helgason, fyrrv. ráðherra
Rakel Olsen, framkvæmdastjóri
Ólafur Egilsson, fyrrv. sendiherra
Þórunn Sigurðardóttir, stjórnarformaður UNICEF
Örnólfur Thorsson, orðuritari
Í nefndina virðast veljast afdankaðir embættismenn og listasnobbarar. Skilyrði er að nefndarmenn séu sjálfir handhafar orðunnar!
Forsetabréf um Fálkaorðuna hér.
Meira um orðuna hér.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 29.4.2009 kl. 11:53
Smá viðbót. Það er svo að sjá sem Ólafur hafi stoppað orðuveitinguna þegar hún kom á hans borð eftir að Orðuveitingarnefnd og embættismannakerfið höfðu ákveðið framgang þess.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 29.4.2009 kl. 12:01
Þetta er athyglisvert mál en mér finnst okkur vanta upplýsingar um gang þess.
Axel segir "það er svo að sjá að Ólafur hafi stoppað orðuveitinguna þegar hún kom á hans borð eftir að Orðuveitinganefndin og embættismannakerfið höfðu ákveðið framgang þess". Er þetta ályktun sem Axel dregur af fréttaflutningi fjölmiðla eða hefur hann einhverjar "innherja" upplýsingar?
Heyra ákvarðanir um orðuveitingar undir Orðuveitinganefnd sem fellur undir FORSÆTISRÁÐUNEYTIÐ en ekki undir forsetaembættið eða forsetaskrifstofuna?Hvar kemur forsetinn inn í ákvörðun orðuveitinganefndarinnar?
Fékk sendiherrann bréf frá UTANRÍKISRÁÐUNEYTINU þess efnis að henni yrði afhent orða íslenska ríkisins? Hver undirritaði það bréf?
Er Orðuritari Orðunefndar ekki "nú ávallt starfandi forsetaritari"líka forsetaritari" (sjá vefsíðu forseta Íslands)? Gengir Örnólfur Thors ekki því embætti? Var ekki haft eftir Örnólfi í fjölmiðlum að hann hefði sent erindi til prótokollstjóra utanríkisráðuneytisins (trúlega USA?) um að ákveðið hefði verið að sæma sendiherra þeirra á Íslandi heiðursmerki ÁN ÞESS ÞÓ AÐ FORMLEGA HAFI VERIÐ GENGIÐ FRÁ ÁKVORÐUNINNI. Er hugsanlegt að Örnólfur eða atvinnuveitandi hans (hver svo sem hann er) þurfi að "axla ábyrfð"?
Þetta "mál" er fáránlegt. Sendiherra Bandaríkjanna fær bréf frá Utanríkiráðuneytinu um að Ísland hafi ákveðið að veita henni medalíu. Þar með er málið afgreitt.Einhver vissi af þessu bréfi. Einhver, að sögn, hringdi í sendiherrann á leiðinni til Bessastaða, til að kveðja Landshöfðingja okkar og taka á móti orðunni, til að segja henni að hún fengi orðuna ekki en hún væri samt velkomin í kaffi og kleinur hjá forsetanum.
Þetta er fáránlegt nema hér hafi verið eitthvað á ferðinni sem okkur er leynt
Agla (IP-tala skráð) 29.4.2009 kl. 18:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.