Er það satt?

eurovisionÍslenska lagið í Evrópu-  söngvakeppninni er tvímælalaust besta lagið sem við höfum sent í keppnina lengi. Ekki finnst mér það samt sigurstranglegt.

Við höfum verið gjörn á að yfirskjóta verulega þegar okkar framlag er á ferðinni, sér í lagi ef öðrum þjóðum verður það á að hæla laginu.

Þetta er að sjálfsögðu spurning um smekk og sitt sýnist hverjum eins og gengur. En það er staðreynd að Jóhanna Guðrún er fanta góð söngkona, það verður ekki frá henni tekið, hvar svo sem lagið hafnar. Hún á eftir að ná langt snótin sú.

Margir hafa spáð Norska laginu sigri, það finnst mér hæpið, lagið er hvorki fugl né fiskur. Tyrkneska lagið hefur líka verið nefnt sem kandídat en að mínu mati er það aðeins enn einn magadansinn, sem allir hljóta að vera búnir að fá upp í kok af.

Gæti trúað að úrslitin kæmu algerlega á óvart.


mbl.is Ein allra fallegasta ballaðan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Welcome to my world með Jim Reeves.. nei nei bara að atast í þér Axel

Finnur Bárðarson, 16.5.2009 kl. 18:53

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sumir höfðu spáð Frökkum sigri, er að hlusta á það meðan ég skrifa þetta. Ég átta mig ekki á því hvort aumingja konan er að muldra upp úr svefni eða hreinlega hrjóta. En það gildir einu.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 16.5.2009 kl. 19:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.