Frestur er á illu bestur

Ég hef aldrei skilið hvernig stendur á því að þeir sem halda skepnur og staðnir eru að illri meðferð þeirra fái ítrekað frest til úrbóta og jafnvel frest á frest ofan.

Það er deginum ljósara að sé ástand dýra með þeim hætti að ástæða sé til afskipta, þá er það eitthvað sem ekki byrjaði í gær.

Vannærð og illahaldin dýr þurfa ekki frest, þau þurfa tafarlausar úrbætur og aðra umalendur.


mbl.is Athugasemdir við aðbúnað hrossa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Því miður er seint og illa tekið á dýraníðingsmálum hér vegna einhverjar óútskýranlegrar ´´aumingjadýrkunnar´´ á gerendum.  Það sem er verra er að oft á tíðum gera samsveitungar þessara drullusokka ekki mikið annað en að horfa í hina áttina í stað þess að þrýsta á um aðgerðir og úrlausnir.  Ítrekað er dýraníðingum gefinn frestur ofan á frest, ár eftir ár einsog dæmin hafa sýnt. Sama fólkið heldur áfram að fremja sín voðaverk sem þetta eru á sakleysingjum sem enga björg geta sér veitt.  Eitt furðulegasta dæmið um sauðfjár- og hrossaníðinga er bær einn í Borgarfirðinum þar sem ábúendur með margfalt stærri bústofn heldur en jörðin getur annað, hafa ár eftir ár verið klagaðir, kærðir og jafnvel skorið niður vegna mjög alvarlegs ástands á hrossum og sauðfé en aldrei er sagt stopp, hingað og ekki lengra.  Þetta fólk telur sig vera að ala upp harðgerðari stofn með ''þrengra magamál'' að eigin sögn !  Ha, myndi einhver segja, er ekki bara verið að svelta dýrin!   

Halli (IP-tala skráð) 28.5.2009 kl. 09:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband