Það verður seint frétt að....

hjorleifur guttormsson.... Hjörleifur Guttormsson sé öðrum ósammála.

Það yrði fyrst frétt og verulegt áhyggjuefni, tæki hann óvænt upp á því að vera sammála öðrum eða hæla þeim.

Það eina sem vekur athygli við þessa grein Hjörleifs og kemur á óvart er hve stutt hún er, aðeins 0,05 hjörl.


mbl.is Hjörlfeifur gagnrýnir Steingrím J. harðlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er það ekki frétt að Hjörleifur Guttormsson vegi að Steingrími J Sigfússyni?

Kári (IP-tala skráð) 22.7.2009 kl. 09:33

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Nei Kári,  hreint ekki. Hjörleifur hefur alla tíð höggvið á báðar hendur, jafnt til vinstri og hægri. Hann er einfari sem rúmast illa í hóp.

En Hjörleifur má eiga það, að sem þingmaður og ráðherra var hann mjög vinnusamur tók jafnvel elju Jóhönnu Sig fram og þá er mikið sagt. Hjörleifur er t.d. sagður vera eini Íslendingurinn sem hefur lesið allt regluverk Evrópusambandsins frá a til ö.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 22.7.2009 kl. 09:49

3 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Einfari? Virðist þér hann t.d. vera einfari innan VG í Evrópumálum? Eða í umhverfismálum? Hann er einmitt fulltrúi þeirra hópa innan flokksins sem verið hafa kjölfestan í fylgi hans og eru enn, sósíalistarnir og umhverfissinnarnir. Það er alveg ljóst að hann er ekki einungis að túlka sjónarmið í gagnrýni sinni á Steingrím og forystu VG sem eru bundin við hann einan. Því fer víðs fjarri.

Hjörtur J. Guðmundsson, 22.7.2009 kl. 10:05

4 identicon

"Hjörleifur er t.d. sagður vera eini Íslendingurinn sem hefur lesið allt regluverk Evrópusambandsins frá a til ö".segir þú.

Það er ef til vill ástæðan fyrir andstöðu Hjörleifs.

Hjörleifur byggir ef til vill afstöðu sína vegna þekkingu sinnar á ESB.

Axel, við skulum ekki gera grín af þeim örfáu stjórnmálamönnum, fyrrverandi og/eða starfandi, taka afstöðu til mála vegna þekkingar og setja sig inn í málin. Við eigum allt of marga stjórnmálamenn sem eru tækifærissinnar og illa upplýstir fúskarar.

Guðlaugur V Sigmundsson (IP-tala skráð) 22.7.2009 kl. 10:14

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hjörtur, þú ert sem sagt að segja að Hjölli hafi ekki verið einfari og rekist illa í hópi, heldur þvert á móti. Þú vilt meina að hann hafi ekki slysast til að vera sammála fáeinum öðrum um þröng einangruð mál. Þegar Hjölli fór fyrst á þing fyrir Alþýðubandalagið á Austurlandi fékk flokkurinn 2455 atkvæði. Síðan minnkaði fylgið jafnt og þétt við setu Hjölla. 1991 síðasta framboð AB í því kjörd. fékk Hjölli 1519 atkvæði, hver er hugsanleg skýring á því?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 22.7.2009 kl. 10:48

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Guðlaugur, þú kemur með beina tilvitnun í mig og skrifar út frá henni. Ég mótmæli því að ég sé að gera með þessum orðum grín að Hjölla, þvert á móti er ég að hæla honum.

Ekki er Hjölli þekktur fyrir að víkja frá fastmótaðri skoðun sinni þrátt fyrir mikinn og stífan lestur á öllu mögulegu.

Þegar Hjölli var iðnaðarráðherra fékk hann þá umsögn frá samflokksmanni sínum, Garðari Sigurðssyni, að ráðherrann væri seinn til allra ákvarðana, nema þær væru rangar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 22.7.2009 kl. 10:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband