Þó einhverjir séu sekir í augum...

...alls þorra almenning, þá er þetta alls óviðunandi og getur á engan hátt leitt til viðunandi niðurstöðu.

 Það er dapurt að menn skuli mæra svona skrílshátt. Þótt einhverjum finnist í hjarta sínu viðkomandi eiga þetta skilið, þá verður að líta á heildarmyndina, hvert þetta kann að leiða.

hangingVerður það framhaldið, ef almenningi finnst farmganga lögreglu og yfirvalda ekki nægjanlega snögg og afdráttarlaus, að fólk grípi sjálft til „viðeigandi“ refsinga, hvar endar slík þróun?  

Það er vissara að nágrannar séu sæmilega sáttir þegar málið er komið á það stig.

Geri dómstóll götunnar mistök, hvernig verður það tekið til baka, verður það metið sem ásættanlegur fórnarkostnaður?

Þegar málninguna þrýtur, verður þá hugmyndaflugið látið ráða, verða þá hengingar án dóms og laga að hætti Villta Vestursins næsta mál? 

Og þá hið besta mál?

  
mbl.is Málningu úðað yfir bíl Björgólfs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hjartanlega sammála þér Axel.

Svona verknaðir skila engu og bæta ekkert. Auðvitað kraumar mikil reiði í samfélaginu, en reiðin skilar engu og réttlætir ekki skemmdarverk.

Þessir svokölluðu úrtásarvíkingar hafa nú þegar tekið út mikla refsingu frá samfélaginu. Sumir þeirra hafa flúið land og þeir sem eftir eru geta örugglega ekki farið inn í t.d. matvöruverslun án þess að fúkyrðum sé hreitt að þeim. Á bakvið þessa menn eru fjölskyldur og börn sem ekkert hafa til saka unnið og því má ekki gleyma. Held að þetta samfélag fari í hundana  ef auga fyrir auga tönn fyrir tönn aðferðin og "hengingar" án dóms og laga verði að veruleika.

Gefum þessu tíma. Gjörðir þessara manna verða rannsakaðar og án efa verða gefnar út ákærur á hendur þeim. Við búum í réttarríki og allir eiga rétt á réttlátri málsmeðferð. Við myndum sjálf vilja hana ekki satt.

Gunnar (IP-tala skráð) 23.8.2009 kl. 13:29

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir þetta innlegg Gunnar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 23.8.2009 kl. 13:39

3 identicon

Ég er ánægð með málarana, sérstaklega í ljósi þess að yfirvöld horfa í gegnum fingur sér við þá.  Ef farið yrði í eignafrystingu hjá landráðamönnunum væri ég fyrst til í að endurskoða mína afstöðu.

Kolla (IP-tala skráð) 23.8.2009 kl. 13:51

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Kolla, þegar þetta hefur þróast og einhver telur sig eiga eitthvað óuppgert við þig, hvort viltu fá málninguna á bílinn eða húsið? Hvaða lit má bjóða þér?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 23.8.2009 kl. 14:11

5 identicon

Axel!  Hef ég gert þér eitthvað?

Kolla (IP-tala skráð) 23.8.2009 kl. 14:23

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Var ég að segja það Kolla?

Ég var að benda þér á hvernig þessi hugsunarháttur getur þróast. Að fólk fari að gera upp "óuppgerð" má hvert við annað, beint!

Enginn fer þannig í gegnum lífið að einhver eða einhverjir beri ekki kala til viðkomandi.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 23.8.2009 kl. 14:33

7 identicon

Sammála,

Það þarf að heyrast meira í fólki eins og þér. Fólk gleymir hvað við höfum það gott hérna.  Vona innilega að hlutirnir séu ekki jafn slæmir og þeir líta út fyrir að vera þegar allt er komið í ljós.

GO (IP-tala skráð) 23.8.2009 kl. 19:47

8 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir þitt innlegg GO

Axel Jóhann Hallgrímsson, 23.8.2009 kl. 21:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband