Verulega er þrengt að sendiherranum í Köben

Ráðist var í harkalegan niðurskurð á sendiherrabústað ríkisins í Kaupamannahöfn. Keypt var nýtt hús og það gamla selt.  Nú er ekkert óhóf og bruðl liðið lengur. Sendiherrahjónin verða að gera sér að góðu að kúldrast á aðeins 680m2 í stað 800 m2 áður.  

Nokkur hagnaður mun þó hafa orðið  af þessum skiptum, sennilega vegna breyttrar staðsetningar. En það má spyrja sig hvort ekki hefði mátt auka hagnaðinn verulega ef smá skynsemi hefði verið höfð með og keypt húsnæði sem hæfði íslenskri vísitölufjölskyldu, svona 300 m2  svo smá 2007 flottræfilsháttur hefði fengið að fljóta  með?

Hversu rúmt ætli sé yfirleitt um íslenska sendiherrarassa erlendis? Hvernig gistingu ætli Íslenskir ráðherrar og aðrir gullrassar telji við sitt hæfi á ferðum þeirra erlendis á kostnað skattborgara? Það eru örugglega engir „Hótel Loftleiða“ renningar.

 
mbl.is 400 milljónir fengust með sölu á sendiherrabústað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.