Færsluflokkur: Spaugilegt
Allt í plati....
9.5.2009 | 19:31
....fjári vel heppnaður ísbjarnarhrekkur!
Þetta var tær snilld, því verður ekki á móti mælt.
Það er miður ef yfirvöld ætla að einblína á bókstafinn og reyna að gera mál úr þessu.
Þessi hrekkur er ljós í því svartnætti sem ríkir og ekki veitir nú af að veifa þeim týrum sem tiltækar eru.
Ísbjörninn blekking | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 19:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fýkur yfir hæðir.......
9.5.2009 | 16:42
Það verður víst ekki fyrr en síðasta hjólhýsið hefur fokið út fyrir veg, sem því linnir.
Það virðist óvinnandi vegur að hjólhýsa- eigendur margir hverjir átti sig á því að stormur og hjólhýsi hafa aldrei átt skap saman.Það gildir ekki hvað síst um þessi raðhús eða blokkir sem nú eru hvað mest í tísku meðal landans og hengd aftan í bíla sem ráða lítt eða ekki við vandann.
Enn fjúka hjólhýsi undir Ingólfsfjalli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Oft veltir lítil .... ..... ...... .
4.5.2009 | 16:06
Eitt nakið brjóst hefur sett dómskerfi Bandaríkjanna á hliðina.
Dómskerfi sem ekki vílar fyrir sér, ef því er að skipta, að dæma menn til dauða og taka af lífi á ómannúðlegan hátt, það jafnvel þótt oft leiki vafi á að sekt hafi verið sönnuð.
Hér sannast að oft veltir lítil þúfa þungu hlassi.
Hæstiréttur ræðir um bert brjóst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 16:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
„Ofsaveður í rólegheitum?“
3.5.2009 | 17:04
Samkvæmt Íslenskri orðabók Menningarsjóðs þýðir orðið afspyrna - ofsaveður.
Hljómar eins og rólegheitin séu mönnum vonbrigði og löggunni leiðist.
Næturlífið þarf greinilega meira kjöt á beinin.
Afspyrnu rólegt hjá lögreglu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Himnaförin
20.1.2009 | 19:56
Smá glens.......
Mótmæli við Alþingishúsið fóru illilega úr böndunum einn daginn og því voru þau komin til himna, Geir Haarde, Steingrímur J og Ingibjörg Sólrún.
Mjög óvænt tók Guð sjálfur á móti þeim, bauð þau velkomin og sagði að vegna þess að þau væru látin gjalda ástandsins á Íslandi, sem þau vissulega ættu enga sök á, ætlaði hann að veita þeim eina ósk.
Hver er þín ósk Geir? Spurði Guð.
Ég vil að þú þurrkir út Vinstri-græna, svaraði Geir.
Hver er þín ósk Steingrímur? Spurði Guð.
Ég vil að þú afmáir Sjálfstæðisflokkinn svaraði Steingrímur.
Og hver er þín ósk Ingibjörg? Spurði Guð.
Ja ef þú getur komið þessu í kring fyrir þá herrana þá læt ég mér nægja einn bolla af kaffi.
Fólk var að bíða eftir þessum degi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 19:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
"Fyrsti dagur ársins í Bláfjöllum"
18.1.2009 | 12:05
Það verður óheppilegt að hafa dagatalið þar 18 dögum á eftir tímatali í byggð.
Ef þeir fækka stundum sólarhringsins niður í 20 uppi þar, ná þeir að vinna þetta upp fyrir vorið.
Gleðilegt ár Bláfjöll.
Fyrsti dagur ársins í Bláfjöllum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fyrirsögn ársins
31.12.2008 | 13:07
Hér hafa fréttamenn mbl.is toppað sjálfa sig.
.
.
.
.
Ölvaður ökumaður á hlaupum
Ölvaður ökumaður hljóp heim til sín | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 13:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skal hundur heita, ef ekki er refur
16.12.2008 | 15:21
Þeir hafa verið bölvaðir refir í gæludýrabúðinni að pranga ref inn á saklausan manninn.
.
Hundurinn reyndist refur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Að komast í blöðin
14.12.2008 | 19:57
Fyrir athyglissjúkar ekkjur getur greinilega verið mjög gagnlegt að eiga fryst sæði látins eiginmanns.
Ef sæðið er ekki nýtt til síns eina tilgangs, getur sú athyglissjúka alltaf komið sér í blöðin með því að segjast eiga það á lager og íhuga jafnvel að nota það en geti ómögulega gert upp við sig, af eða á.
Eignast Thompson barn eftir dauða sinn? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
HMS Cumberland heldur uppi heiðri flotans.
14.11.2008 | 04:55
HMS Cumberland freigáta breska flotans lenti í sjóorrustu við meint sjóræningjaskip á Adenflóa.
Eftir að skipin höfðu skipst á skotum réðust skipverjar freigátu hennar hátignar til uppgöngu á ræningjafleyið og feldu alla áhafnarmeðlimina þrjá í sjálfsvörn.
Mennirnir voru grunaðir um sjórán.Eins og sjá má af meðfylgjandi myndum má þetta teljast frækilegur sigur hjá Breska flotanum og mun vera fyrsta sjóorrusta flota hennar hátignar frá Falklandseyjastríðinu.
.
.
Burt með spillingarlið allra flokka.......enga Breta hingað til landvarna í desember, aldrei.
Meintir sjóræningjar felldir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 04:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)