Færsluflokkur: Dægurmál
Theresa May og María ...
13.7.2016 | 17:44
Ætli þessi Theresea May og hún María okkar mey séu skyldar?
Theresa May formlega tekin við | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Við munum víst vinna Eurovision - enn einn ganginn.
21.5.2015 | 18:50
Jæja þá er sigurinn í Júróvisjón aðeins formsatriði enn einn ganginn.
Æ-iii hlífið okkur við sigurgrobbi í þetta sinn. Þó framlag Íslands sé flutt af mikilli fagmennsku þá á lagið enga innistöðu fyrir sigri.
Ég efast raunar stórlega um að það nái inn í aðalkeppnina á laugardaginn. Því miður.
Ísland gæti haldið Eurovision | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Lífskertið brennur í báða enda
26.1.2014 | 17:23
Það er eins víst og dagur fylgir nótt að þessi óútreiknanlegi ólátabelgur Justin Bieber, verður ekki langlífur taki hann sig ekki fljótlega saman í andlitinu.
Hann ætti að vera þeim foreldrum víti til varnaðar sem reyna að trana börnum sínum inn á fallvaltar frægðarbrautirnar.
Gomez vill að Bieber fari í meðferð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Störukeppni í uppsiglingu
14.12.2013 | 10:33
Þá er bara að sjá hvort gefur sig fyrr í væntanlegri störukeppni á nýju ári, ráðvillt ríkisútvarpið eða hin stórláta kona að vestan.
Ætlar að skrúfa fyrir Rás 1 og Rás 2 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Svona kappa hæfir auðvitað ekkert minna en lúxusdvöl á fimmstjörnu ríkishótelinu á Eyrarbakka, svo honum megi líða sem best á meðan hann upphugsar nýjar leiðir til að flytja inn eitur í æðar íslenskra ungmenna.
Langur brotaferill Sverris Þórs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Er þá ekki rétt...
30.11.2011 | 18:24
...að starta söfnun fyrir rýjuna?
Það er ekki hægt að horfa upp á það að tuskan eigi ekki fyrir salti í grautinn, eigi hún þá á annað borð fyrir grjónum í grautinn.
Rihanna er skítblönk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Dýrt myndi samlífið allt...
25.9.2011 | 23:17
...ef svo væri hver dráttur!
Bauð tvo milljarða í klámmynd Kardashian | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ást í pósti.
17.7.2011 | 16:08
Kannski mun þetta litla ástarfræ úr fortíðinni verða til þess að ástinn blómstri á ný og turtildúfurnar taki saman aftur, hver veit?
Ástarbréf 53 ár á leiðinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1 stykki ævistarf
10.6.2011 | 09:33
Filippus drottningarmaður á Englandi ætlar af eigin sögn að draga úr opinberum skylduverkum sínum í tilefni af níræðisafmæli sínu.
En hver eru, eða öllu heldur voru, skyldur og tilgangur hertogans af Edinborg? Tilgangur hans var í raun og sanni ekki annar en sá að feðra börn drottningar, skaffa landinu ríkisarfa og þrjár aðrar þjóðfélagsafætur. Ekki amalegt ævistarf það.
Ekkert ætla ég um það að fullyrða, en líklegt má telja að hann hafi fyrir áratugum látið af slíku uppistandi, enda 47 ár frá það brölt skilaði einhverju af sér og allar tilraunir í þá átt, af náttúrulegum ástæðum, álíka tilgangslausar og að reyna að hoppa til Tunglsins.
Þegar litið er yfir afætuhjörðina, ævistarf Filippusar, er eðlilegt að hugsandi fólk hristi höfuðið, þó aðrir haldi vart vatni af hrifningu.
Konunglega breska myntsláttan hefur af tilefni afmælis hertogans látið slá mynt að verðgildi 5 pund sem mun aðeins kosta 5450 pund stykkið. Það er fullkomlega í samræmi við tilefnið, verðgildi Filippusar er í hróplegu ósamræmi við kostnaðinn af honum.
Filippus níræður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Djarfar myndir, já komdu sæll!
7.5.2011 | 21:46
Ber henni Pippu Middleton, sem systur verðandi drottningar Englands, að klæða sig eftir einhverjum siðareglum ensku hirðarinnar, sem ættaðar eru aftan úr rassgati tímans?
Ef pils og brjóstahaldari er full djarft, þá hlýtur bikini að vera hreinn yfirliðsvaldur.
Mun þessi kona ekki geta um frjálst höfuð strokið framvegis, í sínu einkalífi, vegna vensla sinna við helstu steinaldarfjölskyldu heimsins?
Er hennar einkalífi sem sagt lokið?
Djarfar myndir af Pippu vekja athygli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)