Færsluflokkur: Dægurmál
Þeir hugsa um sínar konur suður þar.
7.10.2008 | 22:09
Það verður væntanlega rífandi sala á bílnum í nágranaríkinu Saudi-Arabíu. Sérhannaður fyrir konur en engin sjálfstýring eða snyrtistofa?
.
.
Hann hugsar um sínar konur þessi
Bifreið sem er sérhönnuð fyrir konur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Kongen er död, kongen længe leve!
6.10.2008 | 11:51
Fyrir dyrum stendur að Danir kjósi um breytingar á erfðalögum konungsfjölskyldunnar. Það er gert til að stúlkur, sem eru frumburður hafi jafnan rétt til ríkiserfða og strákar. Eldri lög gera ráð fyrir að stúlka víki fyrir yngri bróður. Út frá jafnréttissjónarmiðum er þetta þarft mál.
En það er undarlegt að þróað lýðræðisríki, þar sem menntun er á háu stigi, skuli yfir höfuð vera, nú árið 2008, enn að þvælast með miðalda þjóðhöfðingjafyrirkomulag. Það meikar ekki sens eins og krakkarnir segja.
Hæfni eða geta erfðaprinsins til að sinna þjóðhöfðingjaembættinu hefur ekkert að segja heldur það eitt að vera sonur mömmu og pabba.
Eðlilegra hefði verið fyrir Dani að kjósa hreinlega um að kasta þessari rándýru glamur rekstrareiningu, sem konungsfjölskyldan vissulega er, á ruslahauga sögunnar.
Kosið um erfðir dönsku konungsfjölskyldunnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Aumingja kóngurinn
5.10.2008 | 14:48
Þær eru ekki góðar fréttirnar frá ríki Svía. Blessaður kóngurinn er að tapa peningum á kreppunni og það jafnvel meira en Jón og Gunna.
Það verður að slá upp söfnun á Norðurlöndum fyrir manninn, ekkert minna.
Svíakóngur tapar á fjármálakreppunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hvað er klám?
4.10.2008 | 16:12
Það er sennilega ekki til nein hárrétt skilgreining á klámi. Þar er við að eiga einstaklingsbundið mat hvers og eins. Ég persónulega sé ekkert klámfengið við myndir af nöktu fólki í tímaritum sem sérhæfa sig í þannig efni. Það er ekkert óeðlilegt eða ógeðslegt við nakinn mannslíkama.
En þeir eru vissulega til sem telja þannig myndir argasta klám. Þeir sem eru þannig þenkjandi geta varla farið í sund því þar er þá argasta klámsýning undir hverri sturtu. Þannig fólk hlýtur að hátta sig í myrkri fyrir svefninn, svo sterkri siðferðiskennd þess verði ekki misboðið.
Þetta fólk reynir oft hvað það getur að hafa vit fyrir öðrum sem ekki eru eins þröngsýnir og hneykslunargjarnir. Það fékk því fram komið að blöð af þessu tagi væru sett í ógegnsætt plast svo viðbjóðurinn blasti ekki við viðkvæmum sálum. Þröngsýni og tepruskapur er ekki bundin við Færeyjar.
Mér er minnisstæður atburður fyrir allmörgum árum þar sem kona skrifaði harðorðaða og átakanlega Velvakandagrein um þann viðbjóð sem oft blasti við henni þegar hún ætlaði að njóta kvöldblíðunnar á sínum eigin svölum. Þaðan sá hún inn í stofu á íbúð í annarri blokk í næsta nágrenni og þar blasti iðulega við augum hennar, par að gera það, sem að hennar mati ætti aðeins að gera í lokuðum herbergjum.
Lögreglan var sett í málið og við rannsókn kom í ljós að til að fá sjónlínu frá svölum aumingja konunnar yfir í sóða stofuna þurfti hún að leggja sig í hættu og hanga nánast öll útaf svölunum.
Það er mikið á sig leggjandi...... .
Hald lagt á klámblöð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Hvað er í gangi eiginlega?
2.10.2008 | 15:27
Hvernig endar þetta? Ástand heimsmála versnar stöðugt og síðasta stóra niðursveiflan er vafalítið sú frétt að Britney Spears sé að spá í að flytja til New York.
Hvernig dettur henni þetta í hug?
Ég vona að þetta hafi ekki áhrif á gengi krónunnar.
Flytur Britney til New York? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Æi nei
29.9.2008 | 07:59
Ég vona bara að þetta hafi ekki áhrif á gengi krónunnar.
Heather Locklear handtekin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sekt á sekt ofan.
28.9.2008 | 15:21
Í Brasilíu er greinilega í gangi jafnskilvirkt kerfi og punktakerfið íslenska. Ekki er líklegt að da Silva borgi 170 millurnar til að leysa út eins til tveggja millu bíl.
Skuldar 170 milljónir í sektir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ó þú grimma veröld
26.9.2008 | 14:40
Fluttu saman, áttu ekki saman, hætt saman, búið alltsaman. Ekki gaman.
Hætt með kærastanum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Örlítið úr leið?
26.9.2008 | 13:21
Hann gaf upp ferðaáætlun, franski Göngu Hrólfurinn áður en hann fór frá skálanum að Fjallabaki. Virðist hafa ætlað Laugarveginn. Hann hefur annað hvort gefið upp ranga ferðaáætlun eða haft eigin ferðaáætlun að engu og endað gönguna út í Grímsey, sem er töluvert úr leið ef mér skjátlast ekki.
Ég vona að hann hafi haft góðar vöðlur meðferðis og ekki blotnað í fæturna þegar hann öslaði Grímseyjarsund.
Þar sem menn eru hiklaust sektaðir fyrir smáyfirsjón, t.d. að fara 5km. framúr leyfðum hámarkshraða, þá er ekki óeðlilegt að sektir liggi við svona framkomu og ábyrgðaleysi sem kostar útkall björgunarsveita svo ekki sé talað um fjárútlát Ríkisins, sem vart má við því þessa dagana.
Var ekki týndur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Málfarsást mbl.is
7.9.2008 | 12:33
Nunnuástir... hvað er nú það? Jú eins og orðið segir mætti ætla að hér væri á ferðinni ástir tveggja nunna á hvor annarri eða fleiri nunnum eftir atvikum, jafnvel hópást. En samkvæmt fréttinni er það öðru nær.
Þetta er bara eitt dæmið af mýmörgum sem sýna mjög skertan móðurmálsskilning blaðamanna mbl.is, sem er skrítið því Morgunblaðið hefur í pappírsútgáfu sinni að mínu viti sýnt metnað fyrir góðu og vönduðu málfari.
Nunnuástir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)