Virðingarverðir morðingjar??

Hún er afskaplega þreytandi  síendurtekin nauðgun Íslenskra fjölmiðla á virðingarávarpinu HERRA!

Hvað ofan í annað eru forhertir ofstopaglæpamenn og hryðjuverkamenn  sem ganga um eyðandi hendi, nauðgandi og myrðandi, kallaðir í íslenskum fjölmiðlum „stríðsherrar“.

Mér er fyrirmunað að sjá nokkuð herralegt og því síður virðingarvert við þessi úrhrök mannkyns.

Fjölmiðlar, kallið sorpið sínu rétta nafni.


mbl.is Var að hefna fyrir morðið á Mehsud
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Talað úr mínu hjarta

Finnur Bárðarson, 9.1.2010 kl. 15:56

2 identicon

Hér er morgunblaðið náttúrulega að þýða beint úr einhverjum erlendum fréttamiðli eins og venja þeirra er. Ég býst við að erlenda útgáfan hafi notað orðið "War Lord" sem Mbl.is þýðir sem "Stríðsherra" sem er reyndar alveg hárrétt þýðing. Kannski væri heppilegra að þýða þetta samsetta orð sem "Stríðsforingi" eða "Herfursti" eða eitthvað þessháttar. Eða hvað finnst ykkur?

Kjartan Magnusson (IP-tala skráð) 9.1.2010 kl. 16:16

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

"Bein þýðing" gengur sjaldan upp. Þýðandinn verður að hugsa á Íslensku þegar erlend tungumál eru þýdd.  Nota verður Íslenska setningafræði og orðvenjur. "Stríðsherra" er því röng þýðing þótt hún kunni að vera orðrétt.

Þetta er alls ekki bundið við Mbl. allir fjölmiðlar hafa staglast á þessum stríðsherrum, þar með talið ríkisútvarpið/sjónvarp.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.1.2010 kl. 16:53

4 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Góð athugasemd Axel.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 9.1.2010 kl. 17:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband