Mulningur #11

Hestamenn á Héraði buðu eitt sinn þeim snjalla og landskunna hagyrðingi Hákoni Aðalsteinssyni að koma með þeim í útreiðatúr. Hákon var ekki mjög áhugasamur og afþakkaði boðið með þessari vísu:

Týndir og slasaðir bíða menn bana,

sem bægslast á hestum um grundir og hlíð.

Ég hef til þessa haft fyrir vana

að horfast í augu við það sem ég ríð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Góður þessi mulningur Axel!

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 7.3.2010 kl. 16:28

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hákon, sem lést í fyrra var að öðrum ólöstuðum risi meðal hagyrðinga.  

Axel Jóhann Hallgrímsson, 7.3.2010 kl. 16:35

3 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Já ég hef heyrt margar góðar frá honum. Mér skilst að þetta hafi bara rúllað frá honum svona mjúklega:) Gaman að svona köppum. Hjálmar Jóns er einn góður líka.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 7.3.2010 kl. 16:43

4 identicon

 Axel, ég lærði hana svona:

Týndir og slasaðir bíða menn bana
sem bægslast á hestum um grundir og hlíð
Ég hef til þessa haft fyrir vana
að horfast í augu við það sem ég ríð.

Kári S. Lárusson (IP-tala skráð) 7.3.2010 kl. 20:40

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sæll Kári.

Takk fyrir þetta innlegg. Ég skráði vísuna eins og ég sá hana, en við nánari athugun þykir mér mun líklegra að þín útgáfa sér rétt og hef því lagað vísuna samkvæmt því.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 8.3.2010 kl. 12:00

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hann strauk henni létt um læri.Hún lét sem ekkert væri.En svo varð hún sár, eftir 17 ár

yfir töpuðu tækifæri.

Hér er ein góð eftir Konna, ég þekkti hann vel hér á árum áður.

Ásdís Sigurðardóttir, 8.3.2010 kl. 12:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.