Syndinni laumað í matinn

0511-0702-2316-3519_Goofy_Drunk_Looking_Businessman_Walking_Around_clipart_imageÞað er auðvitað ótækt með öllu fyrir viðskiptavini veitingarhúsa að komið sé aftan að þeim og áfengi laumað ofaní þá í gegnum matinn, þeim algerlega að óvörum.

Hverjum dytti til dæmis í hug, sem ætlar að vera flottur á því og pantar sér nautasteik með koníaksrúsínusósu, hvítvínslegið sushi, flamberaðan mat eða  Grand Mariner þetta eða hitt, svo fátt eitt sé nefnt, að áfengi hafi verið notað við matargerðina?

Örugglega engum, því er fullkomlega eðlilegt að viðskiptavinir hótelanna í Dubai verði fúlir þegar þeir þurfa, frammi fyrir Guði, að slaga heim.

.

  
mbl.is Áfengi í matargerð bannað í Dúbaí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

FLOTT !

Erla Magna Alexandersdóttir, 22.3.2010 kl. 18:34

2 Smámynd: Björn Birgisson

Muslimar þurfa ekki áfengi, þeir eru flestir kengruglaðir fyrir.

Björn Birgisson, 22.3.2010 kl. 22:25

3 Smámynd: ViceRoy

Skondið... ég hélt það væri alkóhólið sem væri bannað í múslimalöndum...

Hver sá sem hefur eitthvað smá vit á sósugerð og t.d. flamberingu veit að það er nákvæmlega lítið sem ekkert alkóhól eftir þegar það er soðið eða skellt á sjóheita pönnuna svo kvikni í því.

Svo þeir hafa greinilega enga hugmynd um hvernig vín í matargerð virkar... en kannski þeir sem máttu, voru að bæta svolítið miklu í kaldar sósur og þar af :P 

ViceRoy, 22.3.2010 kl. 22:32

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þetta er auðvitað kexruglað.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 22.3.2010 kl. 23:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.