Að þekkja frægan mann

Það er öllum bæði hollt og nauðsynlegt að eiga góða vini því vinafátækt er eina raunverulega fátæktin.

 Því hlýtur öll þjóðin, rétt eins og ég að vera afskaplega glöð að Gerard Butler, hver sem það nú er,  skuli vilja vera vinur Ólafs Darra svo ekki sé talað um þá Ingvar, Hollýfara og Gísla.

Ólíkt eru erlendir álitlegri sem vinir en flatur mörlandinn, svo ekki sé nú talað um ef vinurinn er frægur eða „stjarna“ í ofanílag og ekki skemmir ef hann er líka illahaldinn af Íslandsvináttu. Þá má í kokteilinn blanda þjóðernisrembingi og dassi af monti. Vandi að toppar það.

Ooh,  svo verðum við venjulega fólkið að gera okkur að góðu að þekkja bara Jón og Gunnu í næsta húsi, fólk sem er alveg jafn óáhugavert og maður sjálfur.

Fúlt.

  
mbl.is Góður vinur Gerard Butler síðan í Bjólfskviðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hamarinn

Ég þekki nokkra norðmenn sem hingað hafa komið (íslandsvinir) og þeim þykir vænt um landið og okkur, en af hverju er ekki sagt frá því.

Þvílík frétt.

Hamarinn, 26.3.2010 kl. 14:37

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég á útlenda vini sem hafa heimsótt mig, reyndar ekki heimsfræga en jafn gaman fyrir mig.

Ásdís Sigurðardóttir, 26.3.2010 kl. 15:58

3 identicon

Hamarinn: Vegna þess að sú frétt myndi aldrei komast í topp 5 lesnu fréttirnar.

Morgunblaðið er að svara eftirspurn með þessari frétt.

Geiri (IP-tala skráð) 26.3.2010 kl. 16:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.