Mulningur #23

Tvær konur á besta aldri voru á vappi um Austurvöll, fyrir forvitnis sakir, þegar mótmæli stóðu sem hæst fyrir framan Alþingishúsið.  Þær komu þar að þar sem Jón Valur Jensson stóð með gjallarhorn og sendi syndugum alþingismönnum tóninn.

„Hvernig líst þér á hann þennan“  sagði önnur konan við hina og benti á Jón.  Konan horfði lengi á Jón þruma yfir þingheimi  og dró við sig svarið,  en sagði að lokum:

„Ef hann væri vettlingur sem ég hefði prjónað, myndi ég rekja hann upp“.

  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

He, he, :) góður. Hvar er Jón Valur annars á þessum öragatímum ? Fór hann nokkuð út með DO

Finnur Bárðarson, 9.4.2010 kl. 17:25

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Snilld, það má nota þennan á margt 

Ásdís Sigurðardóttir, 9.4.2010 kl. 18:12

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Finnur, Jón stendur örugglega vaktina, hann er, hvað svo sem hægt er um hann að segja, ekki líklegur til að renna af hólmi.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.4.2010 kl. 18:50

4 Smámynd: Hamarinn

 Góður.

Hamarinn, 9.4.2010 kl. 19:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.