Mulningur #25

Heaven37Jón Valur var dáinn og kom að Gullna hliðinu og knúði dyra. Dyrnar opnuðust um síðir.

„Hvað vilt þú“?  Spurði Lykla-Pétur.

„Ég vil fá inngöngu í himnaríki“, svaraði Jón Valur glaðhlakkalegur.

„Hingað inn kemur þú ekki góði, farðu til helvítis“, sagði Lykla –Pétur hlægjandi og skellti aftur hliðinu.Hell_-_3D_Art

Næsta dag var aftur knúið dyra í Himnaríki. Lykla-Pétur fór til dyra og varð heldur betur hissa, hann sá ekki betur en allir púkar helvítis væru komnir að Gullna hliðinu.

„Hvað í ósköpunum eruð þið að gera hingað?“ Spurði Pétur.

„Við erum flóttamenn úr neðra og komum til að sækja um hæli“, svaraði einn púkinn „því í gær kom einhver nýr gæi og hann er búinn að snúa öllu á haus og gera staðinn að hreinu víti“.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Góður.

Jón Valur lætur til sín taka þar sem þörf er á!

Heimir Lárusson Fjeldsted, 15.4.2010 kl. 12:46

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 15.4.2010 kl. 13:16

3 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 15.4.2010 kl. 13:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband