Eiga dómarar ekki dætur?

Er þetta hæfileg refsing og hæfilegar skaðabætur að mati dómara, ef barnungum dætrum þeirra væri nauðgað?

Fébætur, hversu háar sem þær væru gætu að vísu aldrei bætt þann skaða sem svona kvikindi valda.

Þegar samanlagðar fébætur allra stúlknanna, sem voru fórnarlömb svínsins, eru þær sömu og  einstaklingi voru dæmdar fyrir hugsanlegan starfsmissi er eitthvað mikið að.

Hvernig getur hugsanlegur starfsmissir verið verðmeiri en framtíð og sálarheill fjölmargra stúlkna.

Dómarar þið sem eigið dætur, er þetta það sem þið gætuð óskað þeim?

Hugsið! Takið ykkur tak! Andskotinn hafi það!

 
mbl.is Fimm ára fangelsi fyrir gróf kynferðisbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Já, fimm ár fyrir að nauðga FJÓRUM börnum.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 6.5.2010 kl. 00:47

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég hvet alla til að lesa þetta blogg hér.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 6.5.2010 kl. 01:08

3 identicon

Áður en maðurinn fer í fangelsi á fyrst að skera undan honum og setja á hann pissupoka. Í það minnsta að vana hann. Hann gæti svo jafnað sig í fangelsinu, efast ekki um að hann fengi aðhlynningu og læknisþjónustu þar í kjölfarið. Eru ekki allir barnaníðingar búnir að tapa þeim réttindum sínum að halda þessum gereyðingartólum sínum? Það held ég.

assa (IP-tala skráð) 6.5.2010 kl. 10:35

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Assa, ef hann væri í öðrum afbrotum en nauðgunum þá væri hann sagður hafa mjög einbeittan brotavilja.

Það virðist ekki vera í boði á Íslandi annað úrræði fyrir þessa menn en snöggsoðin fangavist og klapp á bakið að lokinni afplánun.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 6.5.2010 kl. 12:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband