Veitt í matinn

Fólk þyrpist niður að höfnum til að moka upp Makríl sem þar svamlar. Hvað ætlar fólk svo að gera við aflann?

 

Ekki get ég sagt að veiði úr menguðum höfnum landsins sé girnileg til átu í mínum augum.

 

En sínum augum lítur hver silfrið.

  
mbl.is Makríll í Kópavogshöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ekki langar mig í makríl úr höfninni í Kóp. í den borðaði maður þó þorskinn sem veiddist á bryggjusporðinum á Húsavík og þótti góður, kannski því maður veiddi hann sjálfur.

Ásdís Sigurðardóttir, 10.7.2010 kl. 17:11

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sæl Ásdís, ég hef aldrei haft geð á að éta upp úr höfnununum. Þegar ég var að alast upp varð maður að éta það sem á borð var borið, eða svelta.

Ásdís, mér þykir enginn matur í sjálfu sér vondur en það er þrennt sem mér býður við. Eitt er siginn fiskur, ekki af því að hann sé vondur, heldur í gamladaga var þetta yfirleitt smáfiskur veiddur á "grunnu vatni" og því oftast svo pakkaður af hringormi að vafasamt hvort var meira af fiskholdi eða ormi.

Þótt breyting hafi orðið á verkun fisksins hef ég aldrei getað tekið siginn fisk í sátt.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.7.2010 kl. 17:29

3 identicon

Þetta er fiskur sem er að elta síli inn í höfnina... ekki mengaðri en hver annar fiskur.

brynjar (IP-tala skráð) 10.7.2010 kl. 18:48

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Verði þér að góðu brynjar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.7.2010 kl. 19:08

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mér fannst siginn fiskur mjög góður í denn eins og pabbi verkaði hann, hef ekki borðað slíkt í ein 35 ár.

Ásdís Sigurðardóttir, 10.7.2010 kl. 21:16

6 identicon

Thú sagdir thrennt!  hvad léstu ónefnt?  Allt er hey í hardindum.  Eda er ekki kreppa?

Gummi (IP-tala skráð) 13.7.2010 kl. 07:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband