Vita en vilja ekki.

osama_bin_ladenÞað þarf enginn að segja mér að Bandaríkja menn viti ekki upp á þríklofið rautt kuntuhár hvar Ódáminn er að finna og gætu því verið búnir að ná honum fyrir löngu hefði verið til þess minnsti vilji.

 

Osama bin Laden hefur um hríð verið hornsteinninn í þeirri utanríkis- og efnahagspólitík sem Bandaríkjamenn hafa rekið. Falli bin Laden þurfa þeir að koma sér upp nýjum óvin, nýrri ógn til að réttlæta hernaðarbröltið.

 

Það væri þeim ekki  vandamál, í sjálfu sér, að koma sér upp nýjum óvin, því það kunna þeir öðrum betur.

 
mbl.is Clinton telur bin Laden í Pakistan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kallinn er bara löngu dauður og það vita þau. Hann er því núna í "djúpum" felum o.s.frv. Þau þurfa að hafa hann lifandi og því leika þau þetta leikrit.

Unnsi (IP-tala skráð) 19.7.2010 kl. 11:30

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Dauður eða ekki dauður, gildir einu meðan það fréttist ekki.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 19.7.2010 kl. 11:44

3 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Þau eru orðin ansi mörg leikritin sem skálduð hafa verið í kringum 911.

Á báða bóga.

Reyndar eru það bara ákveðnir og þröngir hópar innan Bandaríkjanna sem hagnast á stríðsrekstri. Þeir eru stóru bræður þeirra hópa á Íslandi sem þrífast á braski og að mergsjúga þjóðfélagið.

Litlu frændurnir eru þeir vitstola einstaklingar sem vilja stofna Íslenskan her.

Ólafur Þórðarson, 19.7.2010 kl. 14:42

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

veffari, þessir aðilar ráða ansi miklu og þeirra þræðir liggja víða.

Ef draumurinn um íslenska herinn væri orðinn að veruleka, værum við þá ekki beinir þátttakendur í Afganistan og Íraks bullinu?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 19.7.2010 kl. 14:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband