Sér grefur gröf.

Hún var aumleg útskýring Árna Páls Árnasonar félagsmálaráðherra í hádegis- útvarpinu þegar hann reyndi að réttlæta heimskulega embættisfærslu sína, þegar hann skipaði í stöðu umboðsmanns skuldara.

Þetta viðtal við Árna, minnti illilega á viðtalið við nafna hans Johnsen, þegar hans vandræði voru í hámæli og hann ætlaði að rétta sinn hlut en afrekaði það eitt að dýpka holuna sem hann hafði grafið sér, því hann gleymdi að segja satt.

  


mbl.is Vissi að Runólfur tapaði fé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Samála.

Sigurður Haraldsson, 3.8.2010 kl. 13:23

2 identicon

Hvar er nú öskurkórinn frægi sem orgaði af öllum lífs og sálar kröftum við ráðningu Þorsteins Davíðssonar ?? !!

 Steini litli skuldaði ekki krónu - hvað þá 500 MILLJÓNIR !

 Já, það er aldrei sama " Jón & séra Jón" - enda Árni Páll prestssonur - blessaður !"!

Kalli Sveinss (IP-tala skráð) 3.8.2010 kl. 13:28

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Kalli Sveins hvar er hvað? Er ég ekki að hrópa hérna maður! Ég geri ekki greinarmun á klúðri eftir því hver á í hlut. En þú virðist eiga í einhverju basli með það.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 3.8.2010 kl. 13:33

4 Smámynd: hilmar  jónsson

Það er að verða trend hjá " stjórnmálamönnum " að skjóta sig í fótinn þessa dagana.

Fyrst Árni Páll og síðan Tryggvi þór Herbertsson..Gott ef tryggvi skaut sig ekki í höfuðið með nýjasta pistli sínum á eyjan.is í dag.

hilmar jónsson, 3.8.2010 kl. 13:38

5 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Kalli; Ég veit ekki betur en að það séu mjög háværar raddir í þjóðfélaginu sem gagnrýna harðlega þessa ráðningu.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 3.8.2010 kl. 13:44

6 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Hilmar: Það hefur öllum glerhúsum verið útrýmt hér á landi, bara á síðustu 2-3 mánuðum.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 3.8.2010 kl. 13:45

7 identicon

Sannarlega hrópar þú Axel vor góður.

 En - heyrir þú hneykslishróp úr Stjórnarráðinu ??

 Ekki ég !!

Kalli Sveinss (IP-tala skráð) 3.8.2010 kl. 13:45

8 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Árni Páll verður trúlega annar ráðherrann í sögunni sem segir af sér vegna vafasamra ráðningamála. Hinn ráðherrann hét líka Árni.

Árni Páll er annar stjórnmálamaðurinn sem fellir sig með því að segja augljóslega ósatt í viðtali, hinn hét líka Árni.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 3.8.2010 kl. 13:53

9 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Nei, Kalli ég heyri þau ekki enn frekar en þú. En það er skiljanlegt að ekkert heyrist fyrir öllum afsökunarbeiðna og afsagnahrópum fyrri ríkisstjórnar sem glumið hafa á þjóðinn frá falli hennar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 3.8.2010 kl. 13:57

10 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

verður þá Samspillingar Árni Páll sendiherra áður en langt um líður - þeir passa víst sína þessir

Jón Snæbjörnsson, 3.8.2010 kl. 14:16

11 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ja þegar stórt er spurt Jón, verður fátt um svör.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 3.8.2010 kl. 14:25

12 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Alveg sammála þér.

Ásdís Sigurðardóttir, 3.8.2010 kl. 15:46

13 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Gamla ísland er enn við lýði og ekkert hefur breyst því miður.

Sigurður Haraldsson, 3.8.2010 kl. 19:01

14 identicon

Maður fékk svona heimsku spillingar hroll þegar maður sá Árna í fréttum í kvöld... og svo Kastljósið, það er ekki oft sem maður segir: Guð minn góður :)

Tryggvi Þór... sheesh, þvílíkt og annað eins.

Ég bara stórvorkenni okkur öllum með að hafa svona mikið af fíflum í toppstöðum... erum við kannski enn meiri fífl, að hafa þessi fífl yfir okkur... að fara í kjörklefan og reyna að kjóst þá sem eru minnst gaga.. þetta er eiginlega bara að kasta upp tening.. þegar valkostir eru engir.

Eitthvað verður að gera í þessu.. hreinsa almennilega til

DoctorE (IP-tala skráð) 3.8.2010 kl. 23:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband