Síðasti Geirfuglinn

geirfuglVið færum listamanninum Tod McGrain þakkir fyrir gjöfina og hans framtak.

Geirfuglinn verður okkur þörf áminning, þar sem hann horfir til Eldeyjar, hve auðvelt það er að valda náttúrunni óafturkræfum skaða.

Við erum órjúfanlegur hluti af náttúrunni, við verðum að lifa í sátt við náttúruna og nýta hana á öfgalausan og skynsaman hátt, með henni erum við allt, án hennar erum við ekkert.

 E.S.  Minni á könnunina hér til vinstri.

  


mbl.is Nýtt listaverk afhjúpað á Reykjanesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Harpa Björnsdóttir

Verkið er eftirhermuverk, Todd McGrain er að gera endurtekningu á verki Ólafar Nordal sem stendur úti í Skerjafirði, geirfugl úr áli 120 cm hár og horfir til Eldeyjar, hann hefur verið þar siðan 2008. Þetta vissi Todd McGrain en ákvað samt að gera verkið og setja það upp hér á landi. Þetta vissu yfirvöld í Reykjanesbæ en þáðu samt hermikrákulistaverkið. Ef þetta er hin listræna reisn sem Reykjanesbær hefur og sýnir þær kröfur sem gerðar eru í þessu bæjarfélagi um frumleika opinberra listaverka, þá er ekki hægt að reikna með því að við getum sýnt því virðingu eða glaðst með ykkur á Ljósanótt. Þar að auki stangast þetta á við höfundaréttarlög og sæmdarrétt. Til hamingju með lögbrot á Villuljósanótt!

Harpa Björnsdóttir, 3.9.2010 kl. 15:17

2 Smámynd: Harpa Björnsdóttir

Afsakið, verk Ólafar hefur staðið úti í Skerjafirði síðan 1998 .........

Harpa Björnsdóttir, 3.9.2010 kl. 15:18

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Harpa er þetta eftirlíking af verki Ólafar Nordal? Ef ekki hefur Ólöf einkarétt á Geirfuglum úr áli?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 3.9.2010 kl. 15:47

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Búin að taka þátt  Góða helgi Axel minn

Ásdís Sigurðardóttir, 3.9.2010 kl. 16:57

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir það Ásdís, sömuleiðis góða helgi til þín og þinna.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 3.9.2010 kl. 17:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.