Eru allir sáttir, hvað er að gerast?

Ég hygg að val Viðars Más Matthíassonar  í stöðu Hæstaréttardómara sé bæði rétt og eðlilegt, enda var hann talinn hæfastur umsækjenda ásamt Þorgeiri Örlygssyni.

Ég hef ekki hugmynd um hvar Viðar Már er í pólitík og mig varðar raunar ekkert um það. En það er ég viss um að væri hann yfirlýstur VG þá logaði bloggið núna af vandlætingargreinum um pólitíska bitlinga veitingar  og spillingu Ögmundar Jónassonar.

  


mbl.is Viðar Már skipaður dómari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Ja en hvað með jafnréttisráð. Viðar er ekki kona.

Sigurður Sigurðsson, 10.9.2010 kl. 17:31

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég þekki til Viðars Más og allir sem ég hef haft samband við og þekkja til hans segja að hann sé mjög vandaður og heiðarlegur í alla staði.  Ég þekki ekkert til stjórnmálaskoðana hans, enda eins og þú bendir réttilega á í færslunni, eiga þær ekki að skipta máli, hann ásamt öðrum var úrskurðaður hæfastur til að gegna starfinu og þar sem tveir voru hæfastir í eitt starf liggur það ljóst fyrir að aðeins annar getur fengið það.

Jóhann Elíasson, 10.9.2010 kl. 17:39

3 Smámynd: Kristbjörn Árnason

Það var engin kona í hópi hæfustu umsækenda þar með er jafnréttisráð ánægt væntanlega. En jafnréttisráð sinnir líka körlum ef þeir eru beittir ofríki

Kristbjörn Árnason, 10.9.2010 kl. 17:48

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Er það full víst Sigurður, að hann sé ekki kona? Hvað veit maður hvers kyns hver er að kveldi þegar aðeins þarf að gera sprettu hér og sprettu þar að morgni og bingó - nýtt kyn!

Já jafnréttisráð gæti látið til sín taka.  Það er auðvitað ótækt með öllu að kona hætti í réttinum og karl sé ráðinn í staðin.

Kvenumsækjendurnir voru að vísu ekki metnar jafn hæfar og karlarnir en slíkir smámunir eiga ekki að hindra framgang jafnréttisins.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.9.2010 kl. 17:50

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég held Jóhann að þetta hafi ekki getað endað öðruvísi í ljósi matsins á hæfni umsækjenda.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.9.2010 kl. 17:53

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þekkir þú dæmi þess Kristbjörn?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.9.2010 kl. 17:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.