Hestabrauð

Fyrir margt löngu þurfti Skagstrendingur einn að dvelja í höfuðborginni um hríð. Hann brá sér út í búð eldsnemma morguns til að kaupa það nauðsynlegasta. Þegar hann kom í brauðdeildina var honum sagt að engin brauð væru til því bíllinn úr bakaríinu væri ekki komin.

„Ha“,  sagði hann og benti á nokkrar innkaupakörfur fullar af brauði, „eru þetta ekki brauð“?

„Jú, jú en þetta eru hestabrauð“, svaraði afgreiðslustúlkan brosandi, „það eru brauð frá því í gær, við megum ekki selja þau“.

Skagstrendingurinn kvaðst ekki eiga þeim verslunarháttum að venjast úr sínu Kaupfélagi  að brauð hættu að vera söluvara á meðan ekki mygluðu.

Eftir smá samningaþóf varð það úr að hann fékk keypt eitt „hestabrauð“ á niðursettu verði, auðvitað.


mbl.is Deilt um gamalt brauð í dómssal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Birgisson

Blessaður sveitavargurinn, alltaf er hann bestur!

Björn Birgisson, 14.9.2010 kl. 19:15

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Blessað Kaupfélagið, það var nú aldeilis missir af því. Þó Kaupfélagið hafi upphaflega verið stofnsett með hagsmuni viðskiptavinanna í huga, glataðist sú hugsjón í tímans rás.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 14.9.2010 kl. 19:39

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Já, okkur vantar núna vel rekin kaupfélög. Reyndar er það nú bara minnsta mál að setja á stofn samvinnuverslun og hvað er svo sem til fyrirstöðu við að koma henni á fót fyrir sumarlokin?

Eruð þið eitthvað sérstakt að gera fram að mánaðamótunum?

Árni Gunnarsson, 14.9.2010 kl. 22:31

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég er laus Árni, en ekki líst mér á að stofna slíkt apparat með gömlu Framsóknarformerkjunum.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.9.2010 kl. 11:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband