Nýskipaðir fulltrúar hjá Himnum sf.

Benedikt XVI páfi tók í dag í dýrlingatölu eina sex einstaklinga. Það er því ljóst að páfinn sér um starfsmannahaldið í himnaríki, því með því að lýsa hina dauðu dýrlinga, munstraði hann þá í stöðu fulltrúa á himnakontórnum.

Hinn nýskipaði dýrlingur er þar með orðinn fullgildur fulltrúi forstjórans fyrir Himnum sf. Fulltrúinn meðtekur bænir og aðrar óskir, afgreiðir þær og hrindir í framkvæmd, séu þær nægjanlega gáfulegar.  

Þetta er til mikils hægðarauka fyrir Himna sf.  því þetta eykur afköst og skilvirkni og tekur mesta álagið af forstjóranum, sem getur snúið sér að þýðingarmeiri verkefnum en kvabbi og kvörtunum viðskiptavinanna.

Er þetta ekki galið? 


mbl.is Fyrsti ástralski dýrlingurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Galið, júú!

Bergljót Gunnarsdóttir, 17.10.2010 kl. 12:33

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Axel Jóhann Hallgrímsson, 17.10.2010 kl. 12:53

3 Smámynd: Björn Birgisson

Ææææææææ

Björn Birgisson, 17.10.2010 kl. 14:07

4 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Get ég, fengið, frjálsar handfæra veiðar ?

Axel, getur þú komið þessu til skila ?

Aðalsteinn Agnarsson, 17.10.2010 kl. 14:32

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 17.10.2010 kl. 16:28

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir innitið elskurnar.

Nei Aðalsteinn minn, ég hef engin ítök lengur á efri hæðinni, ég er algerlega úti í kuldanum.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 17.10.2010 kl. 23:26

7 identicon

Merkilegt að það taki einhver mark á þessu kjaftæði ha...
Einn þessarar dýrlinga var einmitt rekin úr kaþólksu kirkjunni fyrir að kjafta upp á barnaníðingspresta...

Nú geta kaþólikkar framtíðarinnar hlakkað til þess að fara með börn sín og dýrka rotin lík... Já hugsið ykkur, kaþólikkar grafa þessa stúpid dýrlinga upp og dýrka þá, já þeir dýrka td rotnandi haus á nunnu...


doctore (IP-tala skráð) 18.10.2010 kl. 09:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband