Jafnréttishalli á Jafnréttisstofu.

kynjajafnréttiÞað er sérstakt ánægjuefni að Jafnréttisstýran, Kristín Ástgeirs- dóttir, hafi keypt kynjagleraugu fyrir alla sjö starfsmenn Jafnréttisstofu.

Það gæti orðið til þess að Jafnréttisstýran, og undirkonur hennar og menn, sjái að það hallar verulega á  jafnrétti kynjanna á Jafnréttisstofu á Akureyri, því þar starfa 5 konur og 2 karlar.

En okkur er sagt að á meðan halli á karla sé kynjamisréttið í góðu lagi,  því þá sé hallinn jákvæður og hið besta mál.


mbl.is Kynjagleraugun sett upp nyrðra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Axel, veistu hvað pabbi hennar Kristínar, var að fiska,

á handfærin, þegar hann var upp á sitt besta ?

Aðalsteinn Agnarsson, 17.10.2010 kl. 01:04

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Nílfisk?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 17.10.2010 kl. 01:20

3 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

800 tonn á ári ,  þetta var Ási í Bæ, einn mesti handfæra maður Íslands,

þú kynnir að meta handfæraveiðar, hefði  Ási talað þig til.

Aðalsteinn Agnarsson, 17.10.2010 kl. 01:43

4 Smámynd: Ellert Júlíusson

Er til jafnréttisstofa fyrir karlmenn? Eru stígamót fyrir karlmenn, og ef ekki...hvað athvarf hafa karlmenn sem lenda í kynbundnu ofbeldi í að hlaupa?

 Þætti gaman að vita þetta!!!

 Veit þetta einhver?

Ellert Júlíusson, 17.10.2010 kl. 02:33

5 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Já Ellert,  Stígamót eru fyrir alla, konur, karla og börn og þar hallar ekkert á jafnréttið, enda eiga  Stígamót ekkert skylt við Jafnréttisstofu. Jafnréttisstofa er samkvæmt orðanna hljóðan jafnréttisstofa og ætti að duga báðum kynjum, en ef þú vilt Karlréttindastofu er ég ansi smeyk um að þú verðir bara að drífa í að setja hana á laggirnar sjálfur. Körlum hefur hingað til dugað að fjargviðrast út í kvenréttindi.

Axel, Vel athugað! Ég vildi nú helst kalla þetta mannréttindastofu og þurrka burt allan ágreining um kyn. Við erum jú öll menn og eigum rétt á að fá að standa jafnfætis, ekki satt?

Bergljót Gunnarsdóttir, 17.10.2010 kl. 06:42

6 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Jóhanna!

Hjálp, hann er nánast að gera mig vitlausa. Skilurðu ekki að hann hættir ekki fyrr en hann fær FRJÁLSAR HANDFÆRAVEIÐAR.

Bergljót Gunnarsdóttir, 17.10.2010 kl. 06:48

7 identicon

Já Ellert, karlmenn leita til Stígamóta. Þú getur skoðað ársskýrsluna á stigamot.is

Hún (IP-tala skráð) 17.10.2010 kl. 08:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband