Dýrslegt kynferðisofbeldi!

rat-hunter-gi-joeÞetta er klárlega kynferðislegt ofbeldi af grófustu sort. Fastlega er búist við að saksóknari muni krefjast þess að ofbeldisrottan sú arna verði dæmd til þyngstu refsingar og hljóti makleg málagjöld.

Rottan hefur enn ekki  verið kyngreind og því er óljóst á þessari stundu hvort femín- istasamtök muni koma rottunni til varnar.

    


mbl.is Fangi sem var bitinn á viðkvæman stað höfðar mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Axel, það er auðvitað ekki sæmandi virðulegri miðaldra konu að viðra tilgátu sína á þessu bitmáli, en miðað við þær fangelsissögur sem ganga - ekki síst úr bandarískum fangelsum, býst ég við að málið upplýsist ef tannaförin verða vandlega skoðuð...  

Kolbrún Hilmars, 14.1.2011 kl. 15:51

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

þá þarf að finna "rottuna" Kolbrún til að bera saman

Jón Snæbjörnsson, 14.1.2011 kl. 16:01

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Eins og sjá má af meðfylgjandi mynd þá er "rottan" vel við vöxt.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 14.1.2011 kl. 16:09

4 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Tannaförin geta allavega ákveðið dýrategundina   

Annars eru fangelsisyfirvöld þarna vestra  í slæmum málum ef "rottur" eins og sú á myndinni getur falið sig í rúmdýnum...

Kolbrún Hilmars, 14.1.2011 kl. 16:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband