Er naglinn gjaldþrota?

Af  fréttum undanfarna daga að dæma,  eru vandamál Berlusconi gamla ekki fjárhagsleg heldur eingöngu vegna þess að samskipti hans við konur hafa verið langt umfram það sem rúmast innan meðalhófs.

Ekkert hefur komið fram um það áður að Berlusconi sé í verulegum fjárhagsvandræðum eða gjaldþrota, eins og fullyrt er í þessari frétt.

Sennilegast er að blaðamaðurinn, sem þýddi þessa frétt, hafi ekki hugmynd um hvað orðatiltækið „að berjast í bökkum“ þýðir og hafi ekki minnsta grun um að hann hafi snúið fréttinni á haus með fyrirsögninni, sem segir þennan kynóða forsætisráðherra vera  orðin gjaldþrota! 


mbl.is Berlusconi berst í bökkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.