Aldrei hefur falskari tillaga verið sett fram á Alþingi

Það hefur verið starfandi  stjórnarskrárnefnd  með hléum nánast allan lýðveldistímann með það hlutverk að breyta og bæta stjórnarskránna. Hvorki hefur gengið né rekið í þeirri vinnu. Alltaf hefur strandað á því sama, stjórnmálamönnum allra flokka hefur verið um megn að taka heildar hagsmuni þjóðarinnar fram yfir þrönga flokkslega hagsmuni.

Það er ekkert í pípunum  að einhver breyting hafi orðið hvað það varðar, nema síður sé. Það hefur aldrei verið þýðingarmeira fyrir fulltrúa LÍÚ á Alþingi að verja hagsmuni sinna umbjóðenda, þar helgar tilgangurinn meðalið.

Því er þetta örvæntingarútspil sett fram af sjálfstæðismönnum, vitandi að nái þessi falska viljayfirlýsing  fram að ganga, hafa þeir náð að hindra endurskoðun kvótakerfisins eða seinkað henni nægjanlega, hið minnsta, þar til þeir fá völd til að innsigla endanlega eignarhald Sægreifanna á aðalauðlind þjóðarinnar um aldur og ævi.

Er eitthvað sem hindrar fulltrúa Samtaka atvinnulífsins á Alþingi, Bjarna Ben og hans hjörð, að semja drög að nýrri stjórnarskrá, úr því þetta er allt í einu ekkert mál? Þau drög væri síðan hægt að bera saman við þær stjórnarskrártillögur sem fulltrúar þjóðarinnar á stjórnlagaþinginu semja og kjósa á milli þeirra ef vill.

 Ég er ekki í nokkrum vafa, hvort plaggið, myndi hugnast þjóðinni betur. 


mbl.is Alþingi hefji endurskoðun stjórnarskrár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Örvænting Sjálfstæðisflokksins gagnvart því að kosnir stjórnlagaþingmenn komi að breytingum á stjórnarskránni, hreinlega gargar á mann.

hilmar jónsson, 1.2.2011 kl. 18:29

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sjálfstæðisflokkurinn engist undan verðandi stjórnlagaþingi líkt og lekandaveira undan pensilíni.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.2.2011 kl. 19:08

3 Smámynd: Baldur Hermannsson

Hilmar minn, er þetta ekki bara gargið í henni Jóhönnu sem þú heyrir út undan þér? Það verður engin breyting nema að hætti Sjálfstæðisflokksins. Hann er lang stærstur. Fylgið hrynur af Samspillingunni. Ef Bjarni vill breyta, þá breytist stjórnarskráin, annars breytist hún ekki.

Baldur Hermannsson, 1.2.2011 kl. 19:51

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Baldur,  Sjálfstæðisflokkurinn getur í bestafalli talist stærsti minnihlutinn og hefur ítrekað verið minntur á það af þjóðinni, þegar hún hefur rassskellt frambjóðendur flokksins til forseta- alltaf!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.2.2011 kl. 20:02

5 Smámynd: hilmar  jónsson

Ef Bjarni vill breyta Baldur ? ...Bjarni Ben gæti ekki einu sinni breytt um hárgreiðslu....

hilmar jónsson, 1.2.2011 kl. 20:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.