Sjálfstæðisflokkur í sjálfheldu

Allir vita að það hefur ekki verið framalega í stafrófi Sjálfstæðisflokksins að þjóðin hefði eitthvað um sín mál að segja milli reglubundina Alþingiskosninga.

Birni Bjarnasyni hlýtur því að vera illa brugðið yfir nýjasta áfallinu í tilvistarkreppu Sjálfstæðisflokksins úr því hann er farinn að tala um þjóðaratkvæðagreiðslu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur komið sé í pólitíska sjálfheldu með því að stíga smá skref í þá átt að taka loksins ábyrgð á eigin klúðri, svo undarlega sem það hljómar.  Björn óttast klofning í flokknum og eina ráðið sem hann sér er að koma enn einn ganginn ábyrgð flokksins á einhvern annan.

Það liggur þá beinast við að mati Björns að varpa völinni á þjóðina og láta hana eiga kvölina. Flokkurinn getur því fríað sig enn ganginn af allri ábyrgð, hvernig sem fer, brosað fölsku brosi framan í þjóðina og sagt, þetta var það sem þið vilduð!

  


mbl.is Björn vill þjóðaratkvæði um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

er ekki bara sjálfsagt að um þetta mál sé kosið Axel - mjög svo "sýnilega" eru skiptar skoðanir um þetta mál í Sjálfstæðisflokknum, kosningar um þetta mál er nauðsyn fyrir alla líka þig að ég tel ....... við viljum jú öll ná sáttum hér sem víðast .....

Jón Snæbjörnsson, 3.2.2011 kl. 13:28

2 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

"Allir vita að það hefur ekki verið framalega í stafrófi Sjálfstæðisflokksins að þjóðin hefði eitthvað um sín mál að segja milli reglubundina Alþingiskosninga."

algjörlega sammála

En kannski er þetta ný stefna hjá XD. Þeir beita sér þá líklega fyrir þjóðaratkvæðisgreiðslu um kvótakerfið.  Lýðræðisástin er svo mikil hjá þeim.

Sleggjan og Hvellurinn, 3.2.2011 kl. 14:01

3 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

.

Sleggjan og Hvellurinn, 3.2.2011 kl. 14:01

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Því ber að fagna ef Sjálfstæðisflokkurinn er að taka upp nýja stefnu, en þeim hefur verið tíðrætt undanfarið um þjóðaratkvæðagreiðslur og vaxið kosnaðinn við þær í augum.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 3.2.2011 kl. 18:16

5 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

hefur ekki með heilan flokk að gera Axel - einstaklingarnir - Bjarni er vaxandi og sýnir á sér öflugri hliðar en í birjun - tel hann góðan dreng og vilja vel

Jón Snæbjörnsson, 4.2.2011 kl. 08:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.