Æpandi þögnin segir meira en mörg orð.

Hún æpir á okkur hin algera þögn á mbl.is um átökin í Sjálfstæðisflokknum í kjölfar yfirlýsingar Bjarna Ben formanns um stuðning  þingflokks Sjálfstæðisflokksins  við  Icesave III.

Oft er hægt að lesa meira út úr þögninni en langlokugreinum, þannig er því einmitt farið að þessu sinni. Ef frá er talin leiðari Moggans í dag þá er þögnin um ástandið í flokknum alger. Núna eltir ekki hver æsingar- og dramafréttin aðra á mbl.is, eins og venjan hefur verið þegar einhver ræskir sig í Vinstri Grænum, upplognar ef ekki vildi betur og allt skrifað á litla nafnlausa heimildarmanninn. 

Það verður fróðlegt að fylgjast með þingmönnum Sjálfstæðisflokksins næstu daga, nú þegar Hádegismóri hefur helt  úr næturgagni sínu yfir formanninn sem boðskap dagsins . Fullvíst er að allir þeir þingmenn sem sátu hjá við síðustu afgreiðslu Icesave munu hugsa sig um tvisvar áður en þeir breyta hjásetunni í stuðning.

En enn skemmtilegra verður að fylgjast með þeim þingmönnum sem greiddu atkvæði með Icesave, hvort þeir standa á sínu eða heykist á viljanum til góðra verka og snúi við blaðinu af eðlislægum ótta sínum við Hádegismóra.

Það væri gaman að vera fluga á vegg í Valhöll á fundi formannsins á morgun þegar hann ætlar að skýra og rökstyðja Icesave kúvendinguna. Fastlega má búast við hressilegum fundi,  mæti Hádegismóri á fundinn og taki glímu við formanninn. Fullvíst er að formaðurinn, líkt og Grettir forðum eftir glímuna við Glám, komi ekki  samur úr þeirri glímu, ef hann „lifir hana þá af“, yfir höfuð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góð grein hjá þér,mér skilst að fundurinn á morgun verði opinn.

Kristján Jón Blöndal (IP-tala skráð) 4.2.2011 kl. 20:02

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir það Kristján. Það verðu þá kannski smalað á hann Krötum og Vinstri Grænum,  til að færri argir Sjallar komist að.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 4.2.2011 kl. 20:07

3 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Já þetta er sérstakt ástand á Mbl.is. Það blasir við öllum.

Fréttirnar á síðunni eru svona eins og að koma í réttar þar sem er eintómur úrtíningur.

Agnes er ekki með neinar fréttaskýringar núna.

Hver er réttur okkar bloggara að þurfa að sitja svona auðum höndum og fá engar almennilegar fréttir til að blogga um.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 4.2.2011 kl. 20:16

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þetta eru slæmir tímar, eins og Karíus sagði við Baktus bróður.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 4.2.2011 kl. 20:24

5 Smámynd: hilmar  jónsson

Ætli þögnin sé jafn ærandi á skrifstofu ritstjóra þessa dagana ? Mig grunar ekki..

hilmar jónsson, 4.2.2011 kl. 20:52

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Heldur þú að ritstjórinn reyti hár sitt með hljóðum?

Gengur Davíð aftur?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 4.2.2011 kl. 20:55

7 Smámynd: hilmar  jónsson

Særingin er að byrja og þú veist hvernig andsettir taka slíku..

hilmar jónsson, 4.2.2011 kl. 21:00

8 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Særing......! Já þá hlýtur Jonny boy að vera kallaður til

Axel Jóhann Hallgrímsson, 4.2.2011 kl. 21:17

9 Smámynd: hilmar  jónsson

Ekki hafa honum nú gengið særingarnar fyrir utan alþingi vel Axel..

hilmar jónsson, 4.2.2011 kl. 21:24

10 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er víst hverju orði sannara.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 4.2.2011 kl. 21:37

11 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Axel, gaman að lesa þig, þú skrifar um bardagann á morgun,

hálfnað er hafið verk.

Aðalsteinn Agnarsson, 4.2.2011 kl. 21:40

12 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir innlitið Aðalsteinn

Axel Jóhann Hallgrímsson, 4.2.2011 kl. 21:56

13 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Hann lifir af.

Sigurbjörn Sveinsson, 4.2.2011 kl. 22:16

14 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Illt væri að sjá hann falla fyrir Hádegismóra, Sigurbjörn, segi það og meina.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 4.2.2011 kl. 22:21

15 Smámynd: hilmar  jónsson

Tek undir það.....

hilmar jónsson, 4.2.2011 kl. 22:45

16 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Bjarni Ben er með þessu ef til vill að gera örvæntingafulla tilraun til að rífa flokkinn upp úr því fari sem flokkurinn var fallinn í, sem einsmáls flokkur. Eina mál flokksins frá síðustu kosningum var í raun andstaða hans við frágang Icesave-málsins, sem þeir höfðu þó áður lofað og sárt við lagt að greiða að fullu.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.2.2011 kl. 00:15

17 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Haha, gaman að þessu tvítali ykkar andstæðinga "hádegismóra" eins og þið kallið hann Dabba vin minn þið eigið þessi næstum sextán athugasemdir (sautján með þessari)  alveg út af fyrir ykkur, svo mikill er áhuginn á Davíð karlinum.

Guðmundur Júlíusson, 5.2.2011 kl. 02:31

18 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk þá fyrir eitt innlegg í viðbót Guðmundur, stuðningur úr óvæntri átt!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.2.2011 kl. 03:03

19 Smámynd: Þórður Einarsson

Mér sýnist að "Hádegismóri"eigi fullt erindi aftur í stjórnmálin,þó ekki væri til annars en skerpa á stjórnarandstöðunni,merkilegt hvað vinstri menn skelfastbara við að heyra nafnið nefnt.

Þórður Einarsson, 5.2.2011 kl. 03:49

20 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Menn hræðast ekki endilega mýs og önnur meindýr þó þeir vilji ekki hafa þau í sínum híbýlum, þó ekki væri nema fyrir sóðaskapinn sem þeim fylgir.

Það er enn allt vaðandi í skít eftir síðasta "músagang", Þórður.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.2.2011 kl. 11:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband