Segjum við Líbýu stríð á hendur?

Boðað hefur verið til utandagskrárumræðu  á Alþingi á morgun um ástandið í Líbýu, væntanlega til að leiða það leiðindavandamál til lykta eða finna á því varanlega lausn.  Í umræðunni munu vísdómsbrekkurnar á Alþingi eflaust segja Gaddafi  til syndanna og leggja honum línurnar.

Framsóknarflokkurinn sem er umræðubeiðandi mun væntanlega leggja til, láti Gaddafi ekki undan síga eftir ályktanir Alþingis, að herveldið Ísland segi Líbýu stríð á hendur, í anda goðanna Halldórs og  Davíðs, sem að þjóðinni forspurðri,  töldu stríðsþátttöku Íslands ekki meira mál en val á morgunmat þann daginn til lausnar á Saddam vandamálinu.


mbl.is Rætt um Gaddafí á Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.