Sala á þessum efnum er ekkert annað en tilraun til morðs

Dauði ungu konunnar um helgina, vegna neyslu á svo kölluðu PMA efni, er slíkur hörmungaratburður að ekki má undir höfuð leggjast að gera strax allar þær ráðstafanir sem til þarf að slíkt endurtaki sig ekki.

Það er alveg klárt í mínum huga að þeir sem útveguðu, eða seldu, ungu konunni efnið, myrtu hana, þó vopnið hafi ekki enn verið að lögum skilgreint sem morðvopn.

Núna reynir á Alþingi, lögum þarf að breyta strax á þann hátt, að þeir sem flytja inn svona efni og selja, eigi ekkert minna en ákæru um tilraun til manndráps yfir höfði sér og morðákæru ef þannig hefur viljað til.

Það þýðir ekki að segja að seljendur og innflytjendur efnisins hafi ekki vitað um skaðsemi þess eða beri ekki ábyrgð á afleiðingum af neyslu þess.  Skaðsemi efnisins og dauðsföll af þess völdum er löngu ljós af fréttum erlendis frá, sala þess er dauðans alvara.

Fyrir þá sem ætla að væla um mannréttindi til varnar þessum dauðans þrælbeinum, er því til að svara að, þetta eru ekki menn heldur skepnur, sem réttast væri að „fjarlægja“  með þeirra eigin meðulum.

  


mbl.is Á annan tug yfirheyrðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.