Þeir hvolfa skipinu!

AthenaÚr því sem komið er, er dæling á miklu magni af sjó á eldinn í færeyska togaranum Athenu, sem nú brennur sínum þriðja bruna, verulega áhættu- söm aðgerð  og sennilega það versta sem hægt er að gera í stöðunni.

Það er greinilegt af því hve hátt togarinn liggur á vatninu að hann er létt tankaður  og sennilega ekkert umfram það sem þarf til að tryggja Athena brunninstöðuleika hans.

Í tönkum togarans eru ekki nema 300 tonn, sem er sennilega aðeins fimmtungur þess sem tankarnir taka.  Það þarf því ekki nema tiltölulega litið af sjó á vinnsluþilför hans og íbúðir til að skipinu hreinlega hvolfi.

Þetta vandamál kallar á aðrar lausnir.


mbl.is Dæla sjó á eldinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Mér sýnist hann nú standa uppi í fjöru, svo ég fæ varla séð hvernig þeir ættu að hvolfa honum. 

Það þarf allavega einhverjar snilldarlausnir til þess.

Jón Steinar Ragnarsson, 9.5.2011 kl. 22:01

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég held að togarinn standi ekki Jón Steinar, þótt hann sé nærri landi, honum hvolfir kannski ekki í bókstaflegri merkingu, en á hliðina getur hann klárlega farið, það er alveg jafn slæmt.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.5.2011 kl. 22:09

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Tjah....ef sjólínan er svona há á honum eins og myndin sýnir, þá væri hann kominn á hvolf án nokkurrar utanaðkomandi hjálpar. Það þarf enginn að segja mér að svona skip fljóti nánast á kylinum.  Það loftar langt undir rassinn á honum og peran er nánast á þurru.

Ef hann er á floti, þá hef ég aldrei sé svona léttan togara fyrr.

Jón Steinar Ragnarsson, 10.5.2011 kl. 01:47

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Berðu myndina við þá sem sýnir hann á siglingu. En hvað veit ég, svosem?

Jón Steinar Ragnarsson, 10.5.2011 kl. 01:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband