Dulbúin einkavæðing tóbakssölunnar

smoking-20smoking-small1Ég reyki ekki sjálfur, og væri persónulega alveg sama þótt allt tóbak hyrfi út í hafsauga. En þessi geggjaða tillaga gerir ekkert annað en skapa ný vandamál en leysir engin.

Þessi brjálaða hugmynd mun aðeins leiða af sér stóraukið smygl og svartamarkaðsbrask á tóbaksvörum. Það hlýtur að vera til hentugri leið til að einkavæða tóbakssöluna.

Þingmönnum væri nær að eyða kröftum sínum í lausnir á þeim fíkntengdu vandamálum sem fyrir eru,  svo sem eiturlyfjasmyglið og læknadópið,  í stað þess að fjölga óleystum vandamálum.

  


mbl.is Tóbak verði bara selt í apótekum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Helgason

Þetta líst mér vel á,,,,,,,,, og læknar gefi lifseðil fyrir áfengi 

Sigurður Helgason, 30.5.2011 kl. 20:46

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þannig var það í eina tíð, á bannárunum!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 30.5.2011 kl. 20:54

3 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Samála þér þetta er fáránlegt með öllu og það segi ég þrátt fyrir að reykja ekki sjáfur og hafa aldrei gert það! En svona bönn og tilfærslur er fáránlegt!

Sigurður Haraldsson, 31.5.2011 kl. 00:39

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þetta snýst ekki um boð og bönn Sigurður.

Þetta snýst um að beina hlutunum inn á ranga braut, til að fá hagstæða útkomu!

Þetta mun vissulega lækka opinberar neyslutölur um reykingar því megnið af tóbakinu verður smyglað.

Þá koma þessar júnkur og segja sjáið hverju við áorkuðum.

Svei!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 31.5.2011 kl. 01:14

5 identicon

Gæti orðið vinsæl pottaplanta og gróðurhúsarunni. Hægt að rækta meiri reykjanlega flóru í leiðinni :D

Þá er frelsið orið algert, flott hobbý. blanda með ginsengi og búa til orkusígó, nú eða róandi sígó fyrir fokksmókinn, haha, - hægt að nota báðar týpur í það.

Drýgja svo með heyi, enda var súrhey reykt hér í eina tíð hjá upprennandi reykingarmönnum....

Jón Logi (IP-tala skráð) 31.5.2011 kl. 07:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband