Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Nýjustu færslurnar
- Trúverðugleiki Bergþórs
- Meðvirknin nær út fyrir Miðflokkinn
- Í framhaldi af því gos-tímabili sem að nú er hafið; að þá er rétt að halda til haga nýjum gögnum um VATNSLEIÐSLUR sem að munu renna í átt að höfuðborgarsvæðinu:
- Boðsmótið hefst 27. nóv
- Á hið góða að koma með friði frá Bandaríkjunum heimsófriðar valdinum mesta ? !!
- Viðreisn kyndir undir innanlandsófriði
Nýjustu albúmin
Eldri færslur
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Það er þá munur á kúk og skít
1.6.2011 | 11:54
Frú Arnþrúður Karlsdóttir útvarpsstýra á Sögu er örg út í hundeiganda sem, að hennar sögn, lætur hundinn sinn gera stykkin sín við garðshliðið heima hjá henni. Það finnst frú Arnþrúði ekki geðslegt að vonum.
En frúin ætti að hafa í huga, að fleira er skítur en hundaskítur, þegar hún á þessari útvarpsstöð sinni drullar yfir menn og málefni, sem ekki eru henni að skapi.
Sennilega er það með skítinn eins og peninga, að þangað safnist hann þar sem mest er af honum fyrir.
Frú Arnþrúður heldur áfram að hnýta í Kastljós fyrir umfjöllun þeirra um læknadópið. Hún vill meina að Kastljósi væri nær að fara að fordæmi Sögu og beina skítkastinu að ríkisstjórninni í stað þess að reyna bjarga henni með umfjöllun um þetta einkennilega áhugamál þeirra Jóhannesar og Sigmars.
Af hverju, spyr frú Arnþrúður, greinir Jóhannes ekki frá nöfnum þeirra sem fóðruðu dóttur hans á eiturlyfjum, hvaða hagsmuni er hann að verja?
Smekklegt ekki satt?
Frú Arnþrúður ætti þá að upplýsa hlustendur útvarps Sögu hvaða hagsmuna hún er að gæta þegar hún eys afurðum sínum yfir Kastljósið fyrir frábæra umfjöllun þeirra um læknadópið.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Tenglar
Mínir tenglar
- MYNDAALBÚM Ljósmyndir síðuhafa
- Skagaströnd Heimasíða Sveitarfélagsins Skagaströnd
- Húnahornið Fréttavefur Húnvetninga
- LJÓSMYNDASAFN SKAGASTRANDAR
Heimsóknir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 1027596
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- axelma
- beggo3
- emilssonw
- snjolfur
- saemi7
- asthildurcesil
- thorsteinnhgunnarsson
- jensgud
- reykur
- joningic
- nafar
- bofs
- olijon
- gthg
- olafurjonsson
- kristjangudmundsson
- mosi
- josefsmari
- hlf
- johanneliasson
- svarthamar
- heidarbaer
- thruman
- ludvikjuliusson
- stefanjul
- axelaxelsson
- svanurg
- viggojorgens
- rlingr
- boggi
- fosterinn
- arikuld
- trj
- kliddi
- kristbjorn20
- ksh
- helgigunnars
- maggib
- prakkarinn
- hecademus
- skari60
- gudjul
- jonsnae
- krissiblo
- aztec
- kristjan9
- gisgis
- komediuleikhusid
- flinston
- muggi69
- gorgeir
- keh
- arnorbld
- gullilitli
- skarfur
- sveinne
- zerogirl
- finni
- kaffi
- taraji
- keli
- gretarmar
- zeriaph
- fun
- seinars
- hordurj
- esgesg
- jonhalldor
- icekeiko
- kjarri
- siggisig
- bjornbondi99
- gullaeinars
- gustichef
- gusg
- raftanna
- himmalingur
- baldher
- minos
- huldumenn
- valli57
Athugasemdir
Manneskja er greinilega ekki lagi og vonandi er einhver að reyna að fá hana til þess að leita sér hjálpar ..
hilmar jónsson, 1.6.2011 kl. 12:16
Heilir og sælir; Axel Jóhann og Hilmar - sem aðrir gestir, hér; á síðu !
Axel Jóhann !
Vitaskuld; átti Arnþrúður ekki að draga harm Jóhannesar Kr. Kristjáns sonar, og hans fjölskyldu, inn í þessa umræðu.
Afar klént, að mínu áliti.
En; öngvu að síður, má gagnrýna Sigmar Guðmundsson, og slekti hans allt; harðlega, fyrir að nefna ekki einu orði það, sem á okkur lands mönnum brennur, sem var tækifærisgjöf Stjórnarráðsliða, í Febrúar 2009. til handa íslenzku Banka Mafíunni, á okkar kostnað; vel, að merkja.
Þess vegna; skyldi enginn, ekki þú heldur Axel minn, hæla Kastljósi RÚV, fyrir efnistökin, af neinu tagi, Skagstrendingur góður.
Jú, jú. Vond voru; þau Geir H. Haarde og Ingibjörg S. Gísladóttir - en ekki tók betra við, eftir þeirra þátt, í Febrúar 2009, sem;; á daginn er komið, piltar.
Með beztu kveðjum; sem jafnan /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 1.6.2011 kl. 13:21
Arnþrúður fer æ oftar yfir línuna, hún virðist farin að líta á sig sem einhvern dómara og refsivönd réttlætisins. Vandinn er að hún skilur ekki hugtökin!
Ég skil ekki Óskar hvað það kemur umfjöllun Kastljósins um læknadópið við eða rýrir hana, þó einhverjum finnist þátturinn hafa vanrækt sérstök áhugamál Arnþrúðar og þeirra sem kóa með henni.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.6.2011 kl. 20:32
Komið þið sælir; að nýju !
Axel Jóhann !
Jú; í ljósi þess, að þér og mér - sem öðrum heiðvirðum Íslendingum er ætlað, eftir skráveifur Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur; hér, um árið, að borga Himinhá gjöld, til þessarrar ofvöxnu stofnunar (RÚV), við Efstaleiti Reykvízkra, getum við gert fullar og óskoraðar kröfur til þess, að þessi stofnun þjóni ÖLLUM landsmönnum - ekki bara; einhverjum Reykjavíkur vandamála specúlöntum, Skagstrendingur vísi.
Er það ekki, lágmarkið, eða hvað, Axel minn ?
Með; ekki lakari kveðjum - en þeim fyrri /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 1.6.2011 kl. 23:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.