Rembast enn við staurinn, rjúpurnar

Það er langt í frá allt land á Íslandi í þjóðareign. Grímsstaðir á Fjöllum eru ekki í almannaeign og því hafa eigendaskipti á þeirri jörð ekkert með „draumsýn“ Ögmundar að gera.

Ef Ögmundur ætlar að tryggja almannaeign á Grímstöðum þýðir það ekki nema eitt – þjóðnýtingu – er Ögmundur að boða aðgerðir í þá átt?

Ég fæ ekki séð að það breyti neinu þó nýr eigandi að Grímstöðum sé erlendur því hann á enga möguleika aðra en nýta þessa fjárfestingu sína, ætli hann ekki að sóa sínu fé. Ekki stingur hann jörðinni í ferðatösku og fer með hana úr landi.

En þjóðrembingurinn ríður ekki við einteyming, allt verður að vera í eigu íslendinga- boða rjúpurnar sem rembast við staurinn. Slagarar eins og „þjóðareign á landi“ hljóma vel en standast ekki skoðun, enda bull og rökleysa. Útlendingar eiga þegar (hræðileg tilhugsun)  stóra hluti í farsælum og góðum atvinnurekstri hér á landi og hafa sannarlega reynst betri en engir í kreppunni, þeir hafa staðið uppúr þegar nánast allt liggur á hliðinni.

Allt á að vera í eigu íslendinga, kurra rjúpurnar, jafnvel þó þeir mörlandar hafi bæði búsetu og lögheimili erlendis, í London, Lux eða Tortóla.

Tökum málið í vandlega skoðun,  segir rjúpan við staurinn, þvælum málinu milli nefnda og drögum á langinn sem best við getum, tíminn vinnur með okkur.

Engin erlend störf hingað, takk!

Kurr! Kurr! Segja rjúpurnar.

  


mbl.is Þarf að fara vandlega yfir kauptilboð Huangs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Rikid tharf ad heimila tho ad einkasala se. Thad getur lika tekid eignarnami.

Nu eiga utlendingar og audmenn (altso tortolar) jardir ut um allar koppa grundir, og ekki er atvinnuskopun thar i gangi a thessum skala. Thad eru tvi fordaemi fyrir thessu.

Mer finnst ad rikid aetti ad ganga inn i kaupin, og svo skoda that hvort kallinn vill ekki leigja til langtima eda a skilmalum. Ef hann er samkvaemur tvi sem hann segir, tha tekur hann tvi.

Jon Logi (IP-tala skráð) 28.8.2011 kl. 17:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband