Málaliðar frelsisins

Danski þjóðarflokkurinn vill að nýir valdhafar í Líbýu greiði herkostnað Dana við „frelsun“ landsins.

Verði þetta ofaná þá liggur beinast við að stíga skrefið til fulls og gera NATO að hreinum málaliðasamtökum sem fari geti „frelsandi“ hendi um lönd og lýð og fjarlægt ríkisstjórnir fyrir hæfilega borgun.

Ef Dönum svíður undan kostnaðinum við krossferð þeirra í Líbýu, ættu þeir að láta það sér að kenningu verða og láta svona bull eiga sig framvegis.

Það er opinbert „leyndarmál“ að verði innrás gerð í  Danmörku verður aðeins ein skipun gefin – „Við gefumst upp“.

Í ljósi þess er giska broslegt að Danir skuli yfir höfuð halda úti her í lofti og láði og hlægilegt að þeir reyni að gera sig hernaðarlega gilda á erlendri grund, þegar þeir eru staðfastir að verja ekki sitt eigið land.


mbl.is Líbíustríð kostar Dani stórfé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband