Umskiptingar

Við lifum svo sannarlega á undarlegum tímum, fátt er eins og það sýnist og veruleikinn er martröð líkastur. 

Sjálfstæðisflokkurinn er orðin þvílíkur umbótaflokkur að hann er komin í eina sæng með ASÍ, sem hefðu í eina tíð þótt nokkur tíðindi.

Ekki verður það geðslegt, en fróðlegt örugglega, að bergja afkvæmi ástarbríma þessara fornu fjenda augum.  

Það  ólíklegt að foreldranefnunnar vilji, þegar fram í sækir,  nokkuð við þann umskiptingsurðarkattarræfil kannast og muni sem minnst vilja af honum vita.

  


mbl.is Bjarni sammála ASÍ „í einu og öllu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Örvæntingin og kvíðinn fyrir Landsfundinum leyna sér ekki hjá Bjarna.

hilmar jónsson, 6.10.2011 kl. 16:08

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Er Bjarni kominn á það örvæntingarstig Hilmar, að hann sé tilbúinn að skríða uppí hjá hverjum og hverju sem er, telji hann það að gagni koma?

Ég held raunar að enginn landsfundarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins sé það verkalýðssinnaður í hjarta sínu að þessi nýjasti ástarblossi Bjarna muni skjóta stoðum undir boruna á honum.

En er Bjarni ekki öruggur? Það fer enginn fram gegn honum, borgarstjórnarprinsessan er deig, hún mun ekki þora.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 6.10.2011 kl. 16:24

3 Smámynd: hilmar  jónsson

Hlutirnir geta gerst hratt í pólitík Axel.

Ég er næsta viss um að Bjarni á eftir að fá mótframboð. Þá ekki síst í ljósi þeirrar örvæntingar sem hann virðist hafa svo mikla þörf fyrir að strá um sig undanfarið.

Ég spái því að 2 mótframboð eigi eftir að líta dagsins ljós.

hilmar jónsson, 6.10.2011 kl. 16:30

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það kann að vera að þannig verði það, að fram komi málamynda framboð svona til að fullkomna grínið.

Birgir Ármannson og Árni Johnsen kannski?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 6.10.2011 kl. 16:39

5 Smámynd: hilmar  jónsson

Kristján Júlíusson ?

hilmar jónsson, 6.10.2011 kl. 16:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband