Hvað?

Ætla Ísraelar að gera árás á Sameinu þjóðirnar?

Ef þeir ætla að hefna sín með því að herða enn frekar kúgunina gagnvart Palestínsku þjóðinni verða þeir að átta sig á því að afstaða heimsins gagnvart helstefnu þeirra er að breytast.

Þeir geta ekki lengur gengið að því sem gefnu að helförin verði þeim framvegis sá hulinshjálmur til ódæðisverka, sem hann hefur verið.

Sá tími er liðinn.

  


mbl.is Ísraelar bregðast við af hörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ísraelsmenn verða að fara að gera sér grein fyrir því, að við sem fundum svo til með þeim vegna Helfararinnar, kunnum ekki að meta það, að þeir skuli fara ennþá verr með aðra.

Þórhildur Lilja Þorkelsdóttir (IP-tala skráð) 1.11.2011 kl. 21:03

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er málið Þórhildur. En sorglegt er að þeir sem vilja sjá bæði Ísraela og Palestínumenn lifa á þessu svæði í friði á jafnréttisgrundvelli eru oftar en ekki úthrópaðir sem gyðingahatarar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.11.2011 kl. 21:12

3 identicon

Málið er ekki einfalt. Ísraelar eru ekki bara vondi kallinn. Mikið flóknara en svo. Kynna sér málið betur.

Karl (IP-tala skráð) 1.11.2011 kl. 21:33

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála ísraelsmenn verða að fara að virða alþjóðalög og samninga.  Þeir hafa hingað til geta gert það sem þeim sýnist, nú er vonandi endir bundinn á slíkt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.11.2011 kl. 22:07

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Karl, ég er sammála því að þú kynnir þér málið betur.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.11.2011 kl. 22:39

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Við skulum vona Ásthildur að sú stund sé upp runnin.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.11.2011 kl. 22:39

7 identicon

Kalli veit alveg örugglega meira um málin en þú Axel ;)

Þú mátt svo endilega Axel biðja hamasliðanna að leggja niður vopn og stoppa eldflaugaárásir á suður hluta Ísraels.Þeir drápu einn og stórskemmdu barna og grunnskóla í Askhelon.

skvísa (IP-tala skráð) 1.11.2011 kl. 23:38

8 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það setur að manni hroll yfir hernaðaryfirburðum Palestínu gagnvart varnarlausu Ísrael, skvísa.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 2.11.2011 kl. 07:20

9 identicon

Kemur Guddi ekki og lúskrar á öllum sem eru vondir við gyðinga, milljónir krissa telja svo vera; Allir góðir við ísrael or else guddi will come and kick yer ass.

:)

DoctorE (IP-tala skráð) 2.11.2011 kl. 09:00

10 identicon

Axel, kynna sér söguna maður!

Landvinningar Ísraela eru afleiðing af stöðugum árásum araba-múslima á hendur þeim  með það markmið að útrýma þeim. Enda er það boðskapur múhameðstrúar að útrýma gyðingum - það er hin raunverulega ástæða fyrir stöðugum morðárásum palistínu-araba á hendur fólki í Ísrael.

Ísraelar geta ekki og eiga ekki að gefa eftir snefil af landi til þessa hryðjuverkalýðs, þeir verða að tryggja hernaðarlega yfirburði landfræðilega til að lifa af. Og það þýðir að reka verður þennan ómennska íslamska lýð austur yfir Jórdaná og halda Gólanhæðum um aldur og ævi. Ekki gleyma heldur Axel að Ísrael mun verða besti vinur Vesturlanda í vörninni gegn þeirri hernaðarvá sem íslamska vorið svokallaða mun skapa.

Ég verð að viðurkenna að ég var sjálfur jafnf fáfróður í þessu máli og þú ert kæri Axel, en svo fór ég að lesa mér til um þetta og staðreyndirnar tala sýnu máli ef menn bara nenna að lesa þær. Hefurðu annars nokkuð lesið um þetta málefni?

En umræðan er öll af hinu góða, hún er til þess að fólk finnur sannleikann.

Brynjar (IP-tala skráð) 2.11.2011 kl. 09:51

11 identicon

En Brynjar þú ert enn fáfróður, hann er partur af vandamálinu sem er JudeoChrIstlam

DoctorE (IP-tala skráð) 2.11.2011 kl. 09:59

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sumir trúa einfaldlega öllu sem Ísraelar og Bandaríkja menn segja þeim.   

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.11.2011 kl. 10:40

13 identicon

Skemmtileg útgáfa af "sannleikanum" eins og þú kallar þessi skrif þín. 22% Þessa "hryðjuverkalýðs" sem ísraelski herinn hefur drepið (í sjálfsvörn geri ég ráð fyrir) síðustu 11 ár eru börn. Það er helmingi hærri tala en palestínumenn hafa drepið. Líklega dettur engum í hug að réttlæta dráp palestínumanna á ísraelum, en menn verða að setja drápin í smá samhengi til að sjá hvað við er að eiga þarna.

Rúnar (IP-tala skráð) 2.11.2011 kl. 12:54

14 identicon

Hér að ofan var ér auðvitað að svara þessum blessuðu skrifum hans Brynjars, svo það sé á hreinu.

 kv

Rúnar

Rúnar (IP-tala skráð) 2.11.2011 kl. 12:56

15 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Er kíkirinn nokkuð fastur í blinda auganu Brynjar?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 2.11.2011 kl. 17:15

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Held frekar að hann sé með leppa fyrir augunum Axel.  Sér ekki, heyrir ekki, nasar ekki nema það sem ísraelsmenn og Bandaríkjamenn segja um heimsmyndina. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.11.2011 kl. 17:27

17 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Brynjar og félagar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 2.11.2011 kl. 18:02

18 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm nákvæmlega

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.11.2011 kl. 18:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.