Hugsum til björgunarsveitanna um áramótin

Þetta hefur verið feikilega umfangsmikil og mannfrek leit og sýnir hvað björgunarsveitirnar okkar eru frábærar og mikilvægar samfélaginu. Illt væri án þeirra að vera.

Svona leitir eru mjög dýrar og öll starfsemi björgunarsveitanna fjárfrek. Sveitirnar fjármagna sig nær eingöngu með sölu flugelda um hver áramót. Það er mikilvægt að fólk hafi það í huga um áramótin og beini flugelda viðskiptum sínum til björgunarsveitanna en sneiði alfarið hjá þeim „afætum“ sem í auknum mæli sækja inn á þennan markað.

Stuðlum að eigin öryggi, verslum flugeldana hjá björgunarsveitunum. Afæturnar hafa, með flugeldasölunni, ekki í huga að bjarga neinum nema sjálfum sér.


mbl.is Maðurinn fundinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ég mun taka það til skoðunar að kaupa meira af flugeldum um þessi áramót. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.11.2011 kl. 13:42

2 identicon

Það er tímaskekkja af samtökum sem kenna sig við heilbrigt líf, útiveru og umhverfisvitund, að flytja inn hundruð tonna af MENGUN árlega. Ekki aðeins loftmengun, heldur pappírsmengun að ógleymdum öllum þeim ókjörum af brennisteinssýrum sem sáldrast niður á jörð og vötn með tilheyrandi skaða.

Þetta flugeldabrálæði er fyrir löngu komið út yfir öll mörk, enda á að fara banna þetta og löngu tímabært. Landsbjörg þarf rekstrarfé og ef við höfum svona óskaplega hlýjar hugsanir til þessara hvunndagshetja, þá gefum við þeim bara peninginn. Er það ekki? Er það ekki rétt hjá mér að það er starfsemin sem við viljum kaupa - en ekki flugeldar?

Að sprengja flugelda er eigingjörn skemmtun á kostnað vistkerfisins í heild sinni og því verður ekki mótmælt.

Karl (IP-tala skráð) 12.11.2011 kl. 17:16

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þú þarft auðvitað ekki að taka við flugeldunum frekar en þú vilt Karl, þegar þú labbar þér til björgunarsveitana milli hátíðana til að gefa þeim pening.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 12.11.2011 kl. 18:19

4 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Minnir mig á tengdamóðir mína. En hún hefur óbeit á jólakortum, vegna pappírsins sem fer í þetta. Í mörg ár keypti hún tré til þess að gróðursetja í stað þess að senda jólakort.

En hún hefur ekki gróðursett eitt einasta tré fyrir allar eldhús-rúllurnar sem hún notar í massavís.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 12.11.2011 kl. 20:26

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Axel Jóhann Hallgrímsson, 12.11.2011 kl. 23:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband