Augljóst lyga og samsærisplott

Málatilbúnaðurinn gegn Gunnari Andersen er að taka á sig æ skýrari mynd samsæris eftir því sem fleiri þræðir koma í ljós.

Málið hefur verið hannað eins og hefðbundnir glæpakrimmar, margir smákrimmar kallaðir til sögunnar og látnir segja í grunninn sömu söguna og skapa söguþráð til að afvegaleiða yfirvöld og lögregluna til sakfellingar og ærumorðs á saklausum manni.

Hvaða andskotans ástæðu hefði Gunnar Andersen haft til að segja manni, sem hringdi og sagðist hafa mikilvægar upplýsinga undir höndum, að fara með þau til DV?

Eru einhver þekkt dæmi þess að fjármálaeftirlitið neiti að taka við gögnum um fjármálasukk og annað sem undir það heyrir og vísi þeim til blaðanna?  

Hversu vitlausir halda höfundar þessa samsæris að menn séu?

Eða vita þeir það nákvæmlega að þannig er það og verður? Vita þeir að málið  muni sofna hægt og rólega í meðferð „góðra manna“ í kerfinu og tilganginum verði náð, hægt og hljótt, því þannig hafi það alltaf verið?

Nýr og þægilegri maður verður kominn innan tíðar í stað Gunnars og krimmunum handgenginn, eða þar til hann gerir eitthvað sem þeir ætlast ekki til af honum. Þá þarf auðvitað að kalla aftur út ærumorðingjaliðið.

  


mbl.is Bað Ársæl að koma gögnum til DV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hrúturinn (IP-tala skráð) 12.3.2012 kl. 17:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.