Sannleikurinn skilgreindur sem óvinur Bandaríkjanna

Samkvæmt frétt á vísir.is er opinbert orðið að Bandaríski herinn hefur sett Julian Assange á sama stall og Al Kaída og Talibana og skilgreint hann sem óvin ríkisins.

Assange hefur sem kunnugt er haft milligöngu, gegnum samtökin Wikileaks, að opinbera leynigögn um ólöglega og glæpsamlega starfsemi CIA og Bandaríska hersins vítt og breytt um heiminn.

Sannleikurinn hefur þar með opinberlega verið lýstur óvinur BNA og fengið sömu réttarstöðu og hryðjuverkasamtök!

Bandarískir borgarar  sem svo mikið sem bjóða Assange góðan daginn eiga það á hættu að verða kærðir fyrir samstarf við óvininn, við því liggur dauðarefsing.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll Axel Jóhann; æfinlega !

Obama; er NÁKVÆMLEGA sama viðrinið - og Bush yngri reyndist vera.

Drullusokkarnir; í Pentagon og Washington, eru 1/2 hættulegri Heims byggðinni, en : Al- Kaída / Lashkar-e-Tayiba / Haqqani feðgar, auk annarra.

Núna; eru Obama - Barrosó ESB stjóri og Nethanyahu Ísraels stjóri, að undirbúa einhvern háskalegasta hildarleik, sem seinni tíma saga kann frá að greina, sem er tilefnislaus aðförin að Írönum, fornvinur góður.

Með beztu kveðjum; sem ávallt, vestur yfir fjallgarð / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 28.9.2012 kl. 12:58

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Rassgatið í Hvítahúsinu er alltaf það sama, hver sem á því situr.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 28.9.2012 kl. 13:29

3 identicon

Sæll; á ný !

Satt segir þú; langleiðina til þess tíma, sem Monroe heitinn sat þar, að minnsta kosti.

Hann vildi útiloka; öll afskipti Bandaríkjamanna, af öðrum Heimshlutum - og meinti það, gamli maðurinn.

Ekki síðri kveðjur; - hinum fyrri / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 28.9.2012 kl. 13:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband