Geymt en ekki gleymt

Fátt bendir til þess að hlutur Framsóknarflokksins verði stór í næstu kosningum. En samt nægjanlegur til að tryggja flokknum hækjuhlutverkið í næstu ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum.

Það ríkisstjórnarsamstarf mun hafa fjölmörg lík í lestinni. T.a.m. verða bolabrögð formanns Framsóknar að ryðja sér inn í N-Austurkjördæmi á kostnað Höskuldar Þórhallssonar, geymd en ekki gleymd eftir kosningar.

Þessi undarlega útkoma segir nákvæmlega ekkert um vinsældir Kögunar krakkans í kjördæminu og eiga sér eðlilegar skýringar. Almennir framsóknarmenn gátu auðvitað ekki hugsað sér að gera flokknum þá sneypu að endursenda Sigmund með eplakinnar aftur suður yfir heiðar. Því brugðu fjölmargir á það ráð að styðja Sigmund tímabundið, þvert á hug sér og með óbragð í munni.

Hætt er við að þetta lík verði dregið upp úr lestinni þegar verst gegnir til að koma höggi á litla Kögunar strákinn. Það gæti allt eins orðið til þess sprengja ríkisstjórn þessara pöruflokka.

Fátt er svo með öllu illt að ei boði gott.


mbl.is Höskuldur verður í öðru sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Sennilega mun þessi ákvörðun formannsins flýta fyrir því að dánarvottorð Framsóknar verði staðreynd. Þetta er örvænting. SDG virðist hafa mjög ótryggt fylgi og þess vegna flýr hann höfuðborgarsvæðið og vill komast að sem dreifbýlingsþingmaður. Hvernig Sendingin að sunnan verður í raun. Kannski dauði Framsóknr? Sic transit gloria in mundi!

Ekki vil eg gráta þann flokk þó hyrfi af þingi. Kannski fyrr því betra!

Góðar stundir án hermangs og spillingar!

Guðjón Sigþór Jensson, 1.12.2012 kl. 21:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband