Líkið í bakgarði ráðherrans

Lögreglunni  barst ábending um að „lík“ væri grafið í bakgarði innanríkisráðherrans.  Ábendingin var studd nægum rökum til að lögreglan taldi fulla ástæðu til að kanna málið betur. Málið komst í hámæli og sú sjálfsagða og eðlilega krafa sett fram að ráðherrann, sem yfirmaður lögreglunnar, viki sæti á meðan á rannsókn málsins stæði.

En ráðherrann, fullur ábyrgðar, vék hvergi og forhertist aðeins í ákvörðun sinni því sekari sem hann virtist. Hann beit svo höfuðið af skömminni þegar hann sem yfirmaður lögreglunnar reyndi að stjórna því hvar í bakgarði hans skyldi grafið og hvar ekki.

Svo verja samflokksmenn ráðherrans bullið út í eitt.  Fullyrt er að það sé tilviljun að lögreglustjórinn í Reykjavík, sem stjórnar rannsókninni, skuli pakka saman og hætta störfum á sama tíma. Hann sá einfaldlega  sína sæng uppreidda og lét af störfum, eflaust eftir „vinsamleg“ tilmæli í þá átt, af afar ábyrgum aðilum.

Hvar gæti það gerst annarstaðar en á hinu óspilta Íslandi, að spilltur ráðherra stjórnaði sjálfur rannsókn á embættisfærslum sínum?


 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

En innanríkisráðherra var alls ekkert kunnugt um þetta lík, því að það voru rotturnar á DV sem höfðu drepið manninn og grafið líkið í garði Hönnu Birnu að næturlagi og kennt henni svo um allt saman.

Þetta gerði að sala á sorpsneplinum DV til greindarskertasta hluta þjóðarinnar jókst verulega eins og alltaf gerist þegar blaðasnáparnir þar ljúga upp einhverju upp á saklausar manneskjur og gera sér veizlumat úr rógburðinum þangað til kjötbitarnir úldna.

Pétur D. (IP-tala skráð) 1.8.2014 kl. 14:19

2 identicon

Úr forsíðufrétt sorpsnepilsins DV:

"Einn viðmælandi, sem starfar náið með ráðherra í ríkisstjórninni, fullyrðir að ef það fáist staðfest að Hanna Birna hafi átt fund með Stefáni Eiríkssyni um lögreglurannsóknina á lekamálinu þá verði hún að víkja."

Þessi "viðmælandi", sem hvergi er nefndur á nafn er ímyndaður.

"„Þú getur sagt þér það sjálfur að ef Hanna Birna ræddi við Stefán á þessum nótum, eða ef hún kallaði hann á fund um lögreglurannsóknina, þá verður hún látin hætta, það er alveg klárt mál,“ segir áhrifamaður úr öðrum stjórnarflokknum."

Þessi "áhrifamaður" er hugarfóstur Jóhanns Páls og Jóns Bjarka.

Síðar í "fréttinni" stendur að DV hafi talað við hina og þessa nafnlausa miðstjórnarmenn í Sjálfstæðisflokknum en það er hreinn uppspuni. Miðstjórnarmenn í Sjálfstæðisflokknum myndu ekki leggjast svo lágt að yrða á úrhrakið á DV.  

Pétur D. (IP-tala skráð) 1.8.2014 kl. 18:10

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þú getur sparað þér púðrið Pétur, Hanna Birna viðurkennir að hafa rætt rannsóknina við Stefán!

Mikið undur ert þú að geta að óathuguðu máli ákveðið og fullyrt við hvern hver og einn flokksmaður talar og um hvað. Þú hlýtur að vinna á ritstjórn moggans. Aðeins þar eru menn svo vitrir.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.8.2014 kl. 19:00

4 identicon

Nei, en ég þekki vinnubrögð DV og þau eru ekki til fyrirmyndar.

Pétur D. (IP-tala skráð) 1.8.2014 kl. 19:15

5 identicon

Lögreglunni hefði verið nær að rannsaka DV. Undir yfirborðinu leynist ormagryfja lyga, rógburðar og undirróðursstarfsemi, því að sumir nafngreindir menn á blogginu hafa bent á þá skýringu að DV hafi sjálft staðið fyrir lekanum með því að greiða einhverjum forritara/tæknimanni fyrir að leka persónulegum upplýsingum, en síðan bætt um betur með því að bæta við alls konar rógburði til að koma höggi á Hönnu Birnu og Þóreyju. Það voru þess háttar aðferðir sem felldu News of the World, en DV er mörgum sinnum verra.

Að Hanna tali við Stefán skiptir engu máli. Fólki sem liggur undir grun um ólöglegt athæfi er frjálst að tala við lögguna og fá upplýsingar um gang mála, sérstaklega þegar upp á það er logið.

Það er staðreynd að í öllum sakamálum síðustu tíu ár hefur DV spunnið hverja lygina á fætur annarri, og löggan veit af því, því að hún þekkir öll smáatriði allra sakamála. En hefur fyrir reglu að fara aldrei fram á leiðréttingu, þar eð löggan vinnur fyrir ákæruvaldið og hjálpar því þannig að fá fólk dæmt fyrir mikið meira en það hefur framið. Stefán veit ósköp vel, að DV er að ljúga öllu en steinþegir til að sýna Sigríði Friðjónsdóttur hollustu sína.

Pétur D. (IP-tala skráð) 1.8.2014 kl. 23:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.