Höfundarréttur eða líf og limir?

Það er greinilegt að dómstólum þykir höfundarréttur að einhverri sögu meira virði en líf og limir konu sem sætt hefur fólskulegri árás og nauðgun. Þarf að segja meira. Skömm er að.

 


mbl.is Bótaskyldur vegna ævisögu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

Ruglið í þessu landi er alveg í steríó við allt annað..

Óskar Arnórsson, 13.3.2008 kl. 17:01

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég tel að Hannes gekk of langt í ritstuldi og öllu því.

En að dómurinn vegna þess, skyldi vera þyngri, en ef hann hefði ruðst inn á þetta fólk sem á höfundarréttinn, misþyrmt því og nauðgað, það er ofvaxið mínum skilningi.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 13.3.2008 kl. 17:18

3 Smámynd: Óskar Arnórsson

..það þarf að rannsaka þessa dómara og sjá hvort ekki sé búið að hræða úr þeim líftórunna af einhverjum mafíugaurum..annað eins hefur nú skeð..

Óskar Arnórsson, 13.3.2008 kl. 17:53

4 identicon

Já þetta eru ótrúlegar tölur, ætli dómarar fari að sofa með bros á vör eftir svona dóma og þá sérstaklega þá fyrir nauðganir og ofbeldi ?? Því eins og réttarkerfið er hérna á íslandi er ég viss um að afbrotamenn sem fá svona dóma fara brosandi í rúmmið.

Hallgrímur Þór Axelsson. (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 18:41

5 Smámynd: Óskar Arnórsson

..mig grunar að afbrotamönnum sé meira skemmt en dómurum í svona málum..

Óskar Arnórsson, 13.3.2008 kl. 18:47

6 identicon

Kannski voru fiflin bara að misnota aðstöðu sína til að gera Jóni Steinari "félaga" sínum gramt í geði. Þeim var meinilla við að fá hann í dóminn á sínum tima. Þetta er auðvitað frekar heimskulegur dómur og vafasamur.

Kári S. Lárusson (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 22:25

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ekki er gott að geta sér til um ástæður svona misræmis í gildismati dómstólana á verðmætum, fé eða fólki. 

Það verður nú fjör þegar bull hugmynd Jóns Steinars, að dómarar tjái sig opinberlega um dómana sem þeir kveða upp, verður að veruleika. Þá yrði einhverju ljósi á þetta varpað. En ekki tel ég að það auki á sátt um dómanna.

Kannski verður hver dómari með  sína bloggsíðu. En það yrði klárlega vítamínssprauta fyrir Moggann og hann hætta kannski að skreppa saman.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 14.3.2008 kl. 14:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.