Bjánalegasta leigubílaferðin

Tveir togarasjómenn íslenskir, (við erum ekkert að gefa það upp að þeir voru Skagstrendingar) voru eitt sinn á Costa del Sol á Spáni.

Nokkuð stíft voru barirnir stundaðir og ekki alltaf gerðar nákvæmar staðarákvarðanir. Þeir félagar voru eitt kvöldið á heimleið, vel slompaðir, af einhverjum barnum, veifuðu leigubíl og settust inn.

En þá kom babb í bátinn þeir mundu ekki fyrir sitt litla líf hvað hótelið þeirra hét. Eftir nokkurt fum, fát og vangaveltur segir annar þeirra svona uppúr sér „maður á hlera“. 

„Aaaha...“ segir þá leigubílstjórinn „... La Galera“, tók U beygju og lagði hinu megin við götuna og sagði „La Galera“ og það stóð heima þetta var hótelið.


mbl.is Bjánalegasta bílferðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gulli litli

Er fyrsti stafurinn nokkud.....nei nei....

Gulli litli, 7.7.2008 kl. 04:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.