Vanhugsuð uppljóstrun.

 

álpappírÞað var mjög misráðið af  starfsmanni verslunarinnar  að upplýsa að hægt sé að leika á öryggiskerfið með álpappír.

Nú hefur gallað kerfi verið gert vitagagnslaust.

Ætli það verði aukning í sölu á álpappír á næstunni?

 ----------------------------------------------------------------------------

Greinarauki: Frétt Mbl.is hefur verið breytt... sjá hér.


mbl.is Hnuplað fyrir mörg hundruð þúsund í Smáralind
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Varla mikið leyndarmál !

Það er löngum vitað að álpappír skermar.

Sá þetta m.a. í bók fyrir um 20 árum :p

Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 13.9.2008 kl. 13:14

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Kann að vera, held samt ekki að fólk spái mikið í hvernig þessi kerfi eru byggð upp. Ég vissi þetta ekki og ég er fráleitt eini vitleysingurinn á Íslandi.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 13.9.2008 kl. 13:19

3 Smámynd: B Ewing

Svo eru margar aðrar aðferðir til. Ein er að leggja saman tvö spjöld, þá núlla þau hvort annað út og hliðið pípir ekki.  Sjálfur hef ég aldrei notað slíka aðferð, vissi þetta bara vegna þess að ég vann í búð í 6 ár.

B Ewing, 13.9.2008 kl. 14:29

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þetta hljómar eins og öryggiskerfið sé meira til sýnis en gagns.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 13.9.2008 kl. 14:39

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

ekki hafði ég hugmynd um þetta með álpappírinn. Svo Axel þú ert ekki eini vitleysingurinn á Íslandi

Jóna Á. Gísladóttir, 13.9.2008 kl. 14:43

6 identicon

Ætli það muni ekki bara vera meira um þjófnað á álpappír :P

Tryggvi (IP-tala skráð) 13.9.2008 kl. 16:49

7 Smámynd: Guðný Lára

hehe ekki vissi ég að hægt væri að leika svona á öryggiskerfið..!

Guðný Lára, 13.9.2008 kl. 18:13

8 identicon

ha... Nú skil ég ekki alveg.

Þú segir að starfsmaðurinn hafi uppljóstrað að þeir hafi notað álpappír, en í fréttinni er vitnað í starfsmanninn: "Þeir voru með búnað til að varna því að kerfið færi í gang". Er ég að missa af einhverju?

Þórdís (IP-tala skráð) 13.9.2008 kl. 18:18

9 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þódís, það er ekki von að þú skiljir þetta ekki, það er búið að breyta fréttinni. Álpappírinn er núna kallaður "búnaður".

Axel Jóhann Hallgrímsson, 13.9.2008 kl. 18:51

10 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er einu "ekki" ofaukið hjá mér í nr.9

Axel Jóhann Hallgrímsson, 13.9.2008 kl. 18:54

11 Smámynd: egvania

Ekki vissi ég þetta þar sem ég er bara fávís kona.

Ásgerður Einarsdóttir

egvania, 13.9.2008 kl. 19:28

12 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Smá athugasemd við þennan gjörning mbl.is hér. Ætlaði að tengja hann við sömu fréttina en það var ekki hægt.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 13.9.2008 kl. 20:46

13 Smámynd: Gunnar Kr.

Mér finnst hálf kjánalegt af þér, Axel Jóhann, að halda inni þessari færslu þinni löngu eftir að búið er að breyta upprunalegu fréttinni. Fullt af fólki hafði ekki hugmynd um þetta og þú virðist vera sá eini sem heldur inni fréttinni og kjaftar sjálfur frá því sem þú varst að gagnrýna Moggamann fyrir.

Þú ert eins og karlinn sem sagði: Ég skil ekkert í því afhverju strákarnir mínir bölva svona djöfulli mikið. Það er svo andskoti leiðinlegt að hlusta á þetta helvíti.

Gunnar Kr., 13.9.2008 kl. 23:20

14 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Gunnar takk fyrir innlitið.

Ég er ekki að gagnrýna mbl.is fyrir að birta fréttina, heldur fyrir að breyta henni, eftir birtinguna, þegjandi og hljóðalaust í stað þess að koma með leiðréttingu. 

Eftir breytinguna, telst þá fyrri fréttin aldrei hafa verið til? Er þeim sem hana lásu þá skylt að taka upp þennan nýja "sannleik" og gleyma öllu, aðlaga sig og þegja?  Eru þetta að þínu mati sjálfsögð og eðlileg vinnubrögð?

Ég ætla ekki að finna þér einhverja niðrandi samlíkingu, þótt af nægu sé að taka.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 13.9.2008 kl. 23:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.